borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Frú forseti. Ég vil byrja á að biðja þá þingmenn sem bíða hér spenntir eftir umræðum um Menntasjóð afsökunar á að hafa tafið þetta aðeins. Ég ætla alls ekki að hafa þetta langt en þar sem ég starfa í þessu húsi — þótt ég sé kannski varaþingmaður í dag og þessa vikuna — hef ég aðeins verið að glugga í þetta plagg. Plagg er í raun og veru mjög gott orð því að ekki besta heldur langbesta ræða sem hefur verið haldin um þetta mál hingað til er fyrsta ræða hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur um þetta; hún lyfti bara þessari ágætu möppu hér og spurði: Hvað er þetta plagg? Takið eftir því að ég er nýr þannig að ég fékk þetta bara svona útprentað í hefti, ekki svona glæsilegt eins og þið.
Við erum að ræða hér þingsályktunartillögu sem á að marka stefnu til ársins 2040. Til að vera svolítið á sömu línu og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir, sem er samflokksmaður minn, þá er náttúrlega merkilegt hvað er lítið í þessu fyrir utan öll rosalega löngu orðin og gröfin sem eru í þessu 29 síðna plaggi. Mér finnst þetta ekki vera neitt sérstaklega mikil framkvæmdaáætlun; það er engin eða ekki mikil tímasetning í kringum þetta, enginn kostnaður. Maður spyr sig kannski: Tengist þetta komandi kosningum í vor? Er þetta eitthvert plagg sem á að ýta eitthvað undir hvað verður þegar kemur að því? Maður verður að spyrja sig þessara spurninga og ég fer kannski aftur um eitt skref og segi að það er fullt gott í þessu. Auðvitað viljum við marka borgastefnu og vera með sterka höfuðborg og hvað þá Akureyrarsvæðið.
En að því sögðu er þetta ekki mikið. Við erum að ræða þetta, það eru margir búnir að fara hér í seinni ræðu og við erum í raun að ræða afskaplega lítið. Svo lítið að framsögumaður hér, hv. þm. Dagur B. Eggertsson, sagði í ræðupúltinu áðan að aðgerðaáætlunin væri eftir. Við erum bara að ræða einhverja stefnu á blaði sem manni finnst svolítið sérstakt í ljósi þess að það er hér kominn október, það er Norðurlandaráðsvika í næstu viku og þá verður ekkert þing og það hefur afskaplega lítið gerst, verður maður að segja, á Alþingi Íslendinga á þessu 157. löggjafarþingi. Það er fullt af málum sem ég myndi halda að væru merkilegri en samt er það borgarstefna sem er verið að ræða núna.
Ég verð aftur að taka undir með hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur, maður veltir svolítið fyrir sér forgangsröðun ríkisstjórnarinnar þegar kemur að þessu. Það er engin atvinnustefna en það er borgarstefna; algerlega ófullkomið plagg með mikið af flottum orðum en samt einhvern veginn efast maður um að það skilji í raun og veru allir hvað er í gangi. Maður hefur fylgst með ræðunum hér, fullt af flottum ræðum og flestir eru jákvæðir gagnvart þessu. En við erum að horfa — margir hafa minnst á Reykjavíkurflugvöll, það hefur verið talað um Háskólann á Akureyri, um heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Svo ef maður flettir í gegnum þetta plagg þá er afskaplega lítið rætt um þetta og eini flugvöllurinn sem er nefndur á nafn er Keflavíkurflugvöllur sem er, alla vega síðast þegar ég vissi, ekki í Reykjavík.
Jónas Kristjánsson heitinn, blaðamaður og ritstjóri „par excellence“, sagði á sínum tíma að það sé ákveðinn grunnur þegar þú skrifar fréttir, og það á kannski líka við þegar þú skrifar frumvörp og þingsályktunartillögur, sem er: Hver, hvað, hvenær og af hverju? Ég verð að segja fyrir mína parta er ekki mikið af því, alla vega alls ekki hvar — eða jú, hvar er reyndar það eina sem er, afsakið, en alls ekki hver og alls ekki af hverju. Hv. þm. Dagur B. Eggertsson sagði hér áðan að það væri margt útskýrt í fyrsta kafla sem væri um framtíðarsýn og meginmarkmið. Ég ætla að fá að vera, af mikilli virðingu, ósammála því. Við getum tekist á um það.
Það sem mér fannst merkilegt, það sem kemur strax og ég ætla að fá að endurtaka af því ég var búinn að merkja þetta, með leyfi forseta:
„Með því verði höfuðborgin viðurkennd sem leiðandi afl og mikilvægi hennar í byggðastefnu stjórnvalda skýrt. Á sama tíma verði sérstaða og hlutverk svæðisborgarinnar viðurkennt …“
Samkeppnishæfni landsins sem er það sem ég var að horfa á. Það er ekkert sem segir sko samkeppnishæfni Reykjavíkurborgar eða Akureyrarsvæðis heldur samkeppnishæfni landsins og svo er auðvitað bætt við „búsetu og lífsgæði á Norðurlandi öllu og austur um land.“
Ég hélt einhvern veginn að við værum hér á Alþingi svona almennt að reyna að búa til samkeppnishæfni með allt öðrum leiðum, eins og t.d. verðmætasköpun, og það væru aðrar leiðir í því. Að sjálfsögðu viljum við styrkja stoðirnar undir borgina til að vera með tækifæri til verðmætasköpunar hér en ég næ ekki alveg beint hvernig samkeppnishæfni landsins fúnkerar inn í þessa borgarstefnu. Þetta er svona enn einn hluturinn af því sem maður kannski botnar ekkert alveg í, kannski er það bara ég.
Það hefur verið farið um svakalega víðan völl. Ég er búinn að krota hérna á blað og gera punkta og mér finnst ég einhvern veginn ekki vera neitt mikið nær því að skilja þetta. Ég er svolítið að spyrja mig: Af hverju er þetta eitthvað mál sem við viljum endilega vera að ræða hér þegar okkur vantar atvinnustefnu, við erum ekki búin að ræða menntamál mikið, okkur hefur skort umræðu um útlendingamálin af einhverju viti. Það er fullt af málum sem allir eru tilbúnir til að ræða en samt stöndum við hér og við erum að eyða klukkutímum í það. Ég er kannski sekur um það líka hér að hafa bætt mér á mælendaskrá alveg undir blálokin, þetta er í rauninni svona flauturæða, til þess að svona að fara hring eftir hring. Ég sé bara á þingmönnunum í salnum að þeir eru jafn hissa á þessari ræðu og ég.
En já, margt mjög fínt og ég hélt mér við Reykjavík því að ég er Reykvíkingur og þingmaður í Reykjavík. En ég ætla ekki að fara að skipta mér sérstaklega mikið af Akureyri og bara óska vinum mínum fyrir norðan alls hins besta. En þetta var svona að mestu það sem ég vildi segja um borgarstefnu að þessu sinni.