157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

borgarstefna fyrir árin 2025--2040.

85. mál
[16:55]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Dagur B. Eggertsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir þessa ræðu. Eins og þingmaðurinn nefnir þá hefur honum fundist áhugavert að kynna sér þessi plögg og spyr: Af hvaða rótum er þetta runnið? Af hverju er mikilvægt að vera með borgarstefnu? Af hverju er mikilvægt að velta fyrir sér hvernig hið byggða umhverfi þróast? Þetta byggir í raun á hugsun sem rannsóknir víða um heim hafa komist að og OECD, sem er Efnahags- og framfarastofnun Evrópu, hefur dregið saman og gefur beinlínis út leiðbeiningar um að það sé ekki bara skynsamlegt og mikilvægt að hugsa um hvernig borgir og hið byggða umhverfi þróast, heldur sé það lykilatriði varðandi hagkvæmni, þar með skattstig, þann kostnað sem fyrirtæki hafa af því að reka sig og þau lífsgæði sem íbúar búa við.

OECD hefur gefið út leiðbeiningar sem m.a. er getið í umfjöllun starfshópsins sem kom að því að leggja grunn að þessu og er fjallað um í greinargerðinni með þingsályktunartillögunni. Þetta var unnið þverpólitískt. Bæjarstjórinn á Akureyri kom að þessu og líka fulltrúi Framsóknarflokksins í bæjarstjórn Akureyrar. Oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík var í starfshópnum sem skilaði þessu af sér. Ég held að þetta sé ekki eitthvert hefðbundið flokkspólitískt mál þar sem fólk eigi að fara í skotgrafir og segja: Þetta hlýtur að vera einhver markleysa af því að þetta er borið fram af ríkisstjórninni. Þetta er mál sem kemur frá starfshópi í tíð síðustu ríkisstjórnar sem þá raunar var, undir það síðasta alla vega, undir forystu Sjálfstæðisflokksins og á einmitt ekki að kalla á ræður þar sem við erum einhvern veginn að skipta okkur í dilka. Þetta er stefnumörkun sem ég held að geti verið mikilvæg og góð fyrir þetta svæði, fyrir alla sem búa hérna, alla sem munu flytja hingað með fyrirtæki eða stofna eitthvað nýtt. (Forseti hringir.) Þess vegna hvet ég þingmenn til að halda áfram að lesa og hugsa um þetta og taka þátt í umræðunni áfram.