157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

borgarstefna fyrir árin 2025--2040.

85. mál
[16:59]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Dagur B. Eggertsson) (Sf) (andsvar):

Forseti. Hvað er samkeppnishæfni? Það er alveg rétt hjá þingmanninum að kannski er fyrsta hugsun um það einstakir skattar eins og skattur af hagnaði fyrirtækja og annað slíkt. Þegar þú talar hins vegar við forstjóra í stórum fyrirtækjum þá myndu þeir segja býsna fljótt að mannauðurinn í fyrirtækinu sé algjört lykilatriði. Staðsetning fyrirtækisins skiptir verulegu máli til að fá það starfsfólk sem þú þarft til þess að láta fyrirtæki blómstra. Staðsetning fyrirtækja snýst mjög mikið um borgir og borgarskipulag. Það að 92% íbúa Reykjavíkur hafi aðgang að grænu svæði eða leiksvæði í innan við 300 metra fjarlægð frá heimili sínu, það er ekki bara lífsgæðamál, það er samkeppnishæfnismál. Að þú hafir verslun eða jafnvel bara kaffihús eða eitthvað í hverfinu getur verið eitthvað sem þér finnst mikilvægt í þínu lífi, kannski ekki, en ef þér finnst það mikilvægt þá er það samkeppnishæfnismál þegar þetta fer að fléttast saman við hagsmuni fyrirtækja sem eru að reyna að lokka til sín fólk. Það að vera öruggur, sem er skipulagsmál, fjallar um marga aðra þætti en bara að það sé lögregla til staðar; t.d. lýsingu og hvernig þú skipuleggur líkurnar á því að fólk eignist og kynnist nágrönnum. Það er lífskjaramál og öryggismál og verður samkeppnishæfnismál þegar þú hugsar það áfram. Mjög mikið af því sem við tölum um sem skipulagsmál — og stundum er talað um að það að búa til góða borg sé gæluverkefni — er þegar nánar er að gáð grjóthart samkeppnishæfnismál fyrir fyrirtækin sem vilja byggja sig upp og laða til sín starfsfólk, stundum alls staðar að úr heiminum, (Forseti hringir.) í viðkomandi borg. Það er hægt að keppa við aðrar borgir.