varnir gegn mengun hafs og stranda.
Frú forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33/2004. Með frumvarpinu er ætlunin að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/883 frá 17. apríl 2019, um móttökuaðstöðu í höfnum til afhendingar úrgangs frá skipum, um breytingu á tilskipun 2010/65/ESB og um niðurfellingu tilskipunar 2000/59/EB. Tilskipunin kemur í stað eldri tilskipunar um sama efni, sem hefur verið innleidd hér á landi.
Drög að frumvarpi þessu og mat á áhrifum þess voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda í febrúar síðastliðnum. Ráðuneytið fundaði auk þess með Hafnasambandi Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi og voru gerðar breytingar á frumvarpinu í kjölfarið varðandi undanþágu á greiðslu úrgangsgjalds hvað varðar fiskiskip og skemmtibáta.
Frumvarpið var lagt fram á síðasta löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga og er því endurflutt. Það hlaut hins vegar umfjöllun umhverfis- og samgöngunefndar og lagt var fram nefndarálit meiri hluta og tekur frumvarpið mið af fyrri umfjöllun umhverfis- og samgöngunefndar.
Umrædd tilskipun felur í sér endurskoðun á eldri tilskipun þar sem skilgreiningar, gildissvið og form hafa verið samræmd við þróun MARPOL-samningsins á undanförnum árum en sá alþjóðasamningur varðar mengun sjávar. Markmið tilskipunarinnar er að vernda hafumhverfið frá neikvæðum áhrifum úrgangs frá skipum sem nota hafnir innan bandalagsins, á sama tíma og greið skipaumferð er tryggð. Þetta er gert með því að bæta móttökuaðstöðu í höfnum og afhendingu úrgangs í höfnum. Með tilskipuninni var ætlunin að einfalda ferla um tilkynningarskyldu notenda hafna. Þá hafa verið settar ítarlegri reglur um ýmis framkvæmdaratriði þar sem aðildarríkin hafa verið með mismunandi túlkun á eldri tilskipun en kröfur um eftirlit eru auknar.
Tilskipunin var tekin upp í EES-samninginn með stjórnskipulegum fyrirvara af hálfu Íslands þar sem innleiðing hennar hér á landi kallar á lítils háttar breytingar á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda, eins og áður sagði, en einnig á hafnalögum, nr. 61/2003. Auk lagabreytinga er þörf á að breyta reglugerð um móttöku á úrgangi og farmleifum í höfnum, nr. 1200/2014, og reglugerð um gjaldtöku í höfnum vegna losunar, móttöku, meðhöndlunar og förgunar úrgangs og farmleifa frá skipum, nr. 1201/2014.
Frumvarpið lýtur m.a. að breytingum er varða hugtök. Skilgreining á úrgangi frá skipum er víkkuð út og nær nú til alls úrgangs sem verður til í skipi eða við lestun eða aflestun eða við hreinsun og sem fellur undir viðauka I, II, IV, V og VI við MARPOL-samninginn. Þá er farmleifum á þilfari og úrgangi sem fangaður er einnig ætlað að falla undir gildissvið laganna. Í frumvarpinu er skerpt á skyldu hafnarstjórnar til að gera áætlun um móttöku og meðhöndlun úrgangs og farmleifa. Þá er lagt til að ráðherra verði heimilt að setja reglugerð þar sem kveðið verði nánar á um útfærslu og uppbyggingu á móttökuaðstöðu í höfnum og að litlar hafnir geti verið undanskildar kröfu um gerð áætlunar um móttöku og meðhöndlun úrgangs og farmleifa.
Að lokum er lagt til að skylda til greiðslu gjalds fyrir móttöku og meðhöndlun á úrgangi frá skipum taki einnig til fiskiskipa og skemmtibáta sem ekki mega flytja fleiri en 12 farþega. Einnig að skylt sé að undanskilja fiskiskip og skemmtibáta sem ekki mega flytja fleiri en 12 farþega greiðslu úrgangsgjalds að uppfylltum ákveðnum skilyrðum sem sett verða í reglugerð.
Frumvarpið hefur áhrif á stjórnsýslu Umhverfis- og orkustofnunar vegna eftirlits en gert er ráð fyrir gjaldtöku stofnunarinnar vegna þess. Frumvarpið hefur engin eða óveruleg áhrif á ríkissjóð.
Virðulegi forseti. Ég hef hér rakið meginefni þessa frumvarps. Ég legg til að því verði að lokinni 1. umræðu vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar.