157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

varnir gegn mengun hafs og stranda.

179. mál
[18:17]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég átti reyndar von á að það yrði ögn ítarlegra en látum það liggja á milli hluta. Mér þykir þó óhætt að túlka svarið á þá leið að öllum þrem spurningum sé í raun enn ósvarað, þ.e. það liggur ekki fyrir með hvaða hætti eftirlitið verður, það liggur ekki fyrir hver kostnaðurinn af eftirlitinu verður og það liggur ekki fyrir hvaða hafnir falla undir þann flokk sem talað er um að ekki sé starfsemi í. Ég held því, frú forseti, að ég gefi hæstv. ráðherra bara aðra atlögu.