viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegur forseti. Ég held að þetta viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir, hið svokallaða ETS-kerfi, vefjist fyrir mjög mörgum, bæði í atvinnulífinu og ég tala nú ekki um almenning. Menn heyra fréttir af kaupum og sölum á losunarheimildum, aflátsbréfum, eins og rætt var um í málinu sem var til umræðu hér á undan. Trúlega hafa fréttir af gjaldþroti flugfélagsins Play vakið marga til umhugsunar um þessar losunarheimildir af því að það liggur fyrir að félagið var ekki fært um að greiða yfir milljarð króna í losunarheimildir sem það þurfti að kaupa og lagði upp laupana degi áður en skuld upp á 1,2 milljarða kr., held ég hafi verið, féll á félagið. Það er alveg ljóst að þessi gjaldtaka, eða skylda félagsins til að kaupa þessar losunarheimildir, var félaginu fjötur um fót hvað sem líður öðrum ástæðum. Það er líka athyglisvert í því máli, sem hefur kannski ekki komið nægilega skýrt fram í fréttum, að það er ekki bara gjaldið sem slíkt sem skiptir máli heldur eru reglurnar í þessum heimi losunarheimilda á þann veg að félag sem ekki innir af hendi á gjalddaga kostnaðinn eða kröfuna fyrir losunarheimildunum — gripið er til þannig aðgerða að listi yfir félög sem ekki borga á gjalddaga er birtur samdægurs. Það eitt og sér er í tilfelli flugfélaga auðvitað bara dómur um gjaldþrot. Það lifir ekkert flugfélag af slíka tilkynningaskyldu í þessum flugheimi að það sé birt að útistandandi krafa sé á gjalddaga. Það er til umhugsunar. Ég held að margir hafi farið að velta þessu kerfi fyrir sér í kjölfar gjaldþrots Play og ég held að það sé ágætt að draga einhvern lærdóm af því. Ég held að ítarleg umræða eigi eftir að fara fram um þetta sérstaklega.
Ég ætla að nota tækifærið í tilefni af framlagningu þessa frumvarps til þess að velta þessum hlutum aðeins upp og nefna að vandinn er kannski öðrum þræði sá, þó ekki óyfirstíganlegur vandi, að umhverfismál voru felld undir EES-samninginn alveg frá upphafi hans. Það eru fáir sem geta útskýrt af hverju það var vegna þess að umhverfismál almennt eru ekki hluti af fjórfrelsi því sem EES-samningnum var ætlað að fjalla um, þ.e. um frjálsa för fólks, þjónustu og fjármagns á milli landa. Umhverfismál voru af einhverjum óskiljanlegum ástæðum felld undir EES-samninginn. Ég held að engan hafi órað fyrir því þá, í aðdraganda samningsins árið 1990, að umhverfismál yrðu jafn umfangsmikill þáttur af stjórnmálum og kæmu inn á jafn marga þætti í samfélaginu og þau gera í dag og ekki síst að umhverfismál yrðu ein helsta tekjulind ríkissjóða víða um heim. Þannig hefur það nú orðið á Íslandi að það eru æ fleiri skattar, nýir skattar og hækkun á sköttum, sem eru réttlættir með vísan til umhverfismála og yfirleitt með röngu en ekki réttu. Þetta ETS-viðskiptakerfi er svolítil lykilbreyta í umhverfismálum Evrópusambandsins og það er þannig sem þessi mál hafa komið inn í íslenskan rétt, en þetta viðskiptakerfi kom þó ekki inn í íslenskan rétt fyrr en árið 2007. Á þeim tíma held ég að menn hafi metið það svo að um það bil 40% af losun á Íslandi myndu falla undir kerfið, en þetta eru aðallega stóriðjan og flugsamgöngur. Þetta kerfi fyrir flugrekendur tók gildi á árinu 2012 en árið 2013 fyrir stóriðjuna.
Árið 2000 var þetta kerfi í mótun hjá Evrópusambandinu og var sett á laggirnar. Þegar á þeim tíma var farið að gefa út ókeypis losunarheimildir til ýmissa aðila og spákaupmanna sem nýttu sér þetta og sáu tækifæri í þessu og keyptu t.d. upp flugvélar sem þeir úreltu, keyptu upp flugvélar sem fengu kvótum úthlutað, fríheimildum svokölluðum, þannig að út úr þessu varð heilmikill markaður þeirra sem voru kannski ekki endilega í atvinnugreininni sem um ræðir heldur höndluðu bara með þessar losunarheimildir. Og af því að hæstv. umhverfisráðherra taldi sig hér í ræðustól áðan til hægri manns, a.m.k. þannig hægri manns að honum hugnaðist hinn frjálsi markaður um þessar viðskiptaheimildir, er rétt að menn hafi í huga að viðskiptakerfi Evrópusambandsins um losunarheimildir er ekki frjáls markaður. Þetta er gervimarkaður. Hann var settur á laggirnar upp úr árinu 2000 og það voru búnar til einingar inn í þetta kerfi af stjórnvöldum, einingar sem deilt var út til tiltekinna aðila frítt. Þessir tilteknu aðilar hófu síðan kaup og sölu á þessum einingum. Þetta snerist ekki um nein verðmæti. Það eru ekki nein verðmæti í þessu heldur er bara um að ræða losunarheimild, bókhaldslega einingu, sem stjórnvöld í Evrópu, Evrópusambandinu, bjuggu til til þess að koma á einhverjum markaði. Þetta er gervimarkaður og það hafa margir fitnað mjög á kaupum og sölum á þessum losunarheimildum. Ég get tekið undir það með hæstv. umhverfisráðherra að ég fagna því ef menn finna matarholur hvar sem er en frjáls markaður er þetta ekki eða eðlilegur markaður. Þetta er tilbúinn gervimarkaður.
Árið 2020 tilkynnir ESB um þetta nýja kerfi, ETS2-kerfi, sem er ætlað að taka utan um viðskipti með losunarheimildir sem ná til losunar frá nýjum greinum. Til viðbótar við stóriðjuna og flugsamgöngurnar er hér verið að tala um byggingar, vegasamgöngur og þessa samfélagslosun sem er talað um. Ég fagna því í sjálfu sér að hæstv. umhverfisráðherra leggi frumvarpið fram án þess að innleiða ETS2-kerfið vegna þess að ég tel útilokað að Ísland innleiði ETS2-kerfið á nokkrum tímapunkti, taki þátt í þeim gervimarkaði. Reynslan af ETS er nefnilega í sjálfu sér ekki góð og hún verður verri með tímanum. Menn hafa rætt hér fjálglega um miklar tekjur sem ríkissjóður hefur og Ísland, eins og menn segja og eru þá að vísa til íslensku orkufyrirtækjanna, Landsvirkjunar, og jafnvel þeirra félaga sem fengu losunarheimildum úthlutað í upphafi. Ég tek sem dæmi flugfélagið Icelandair sem fékk í upphafi úthlutað ókeypis losunarheimildum sem það gat nýtt upp í þær losunarheimildir sem það sjálft þurfti að kaupa. Sama má segja um flugfélagið WOW sem fékk á sínum tíma úthlutað ókeypis losunarheimildum. Þrotabúið seldi þær síðan dýrum dómi þegar félagið féll og sum fyrirtæki hafa fengið þessar fríu losunarheimildir og getað gert úr þeim pening með því að selja þær eða nota þær í sína eigin losun. Verðþróunin á þessum losunarheimildum hefur verið þannig að hver eining hefur snarhækkað í verði, sérstaklega síðustu ár. Ef menn héldu á einhverjum tímapunkti að þetta væri viðráðanlegur kostnaður, sérstaklega í ljósi þeirra ókeypis losunarheimilda sem menn fengu úthlutað, held ég að menn standi frammi fyrir því og séu farnir að sjá að það verður ekki viðráðanlegur kostnaður. Við höfum í dag eitt íslenskt flugfélag sem hefur hreinlega farið á hausinn að stórum hluta vegna þessa kostnaðar.
Menn vona að það komi eitthvert nýtt flugfélag sem fylli það skarð og hafa væntingar um það.Virðulegur forseti, ég er hóflega bjartsýn, svo að ég segi nú ekki svartsýn, á að það gerist í því starfsumhverfi sem flugfélögum er boðið upp á varðandi losunarheimildir. Einingarnar hafa margfaldast í verði, a.m.k. tvöfaldast ef ekki þrefaldast, á undanförnum árum. Það er síðan sérkapítuli, sem ég hef ekki tök á að rekja hér, að reyna að velta því upp hvert þessir peningar fara. Hvert fara peningarnir sem íslenskt flugfélag borgar til að fá losunarheimildir? Hvert fara þessir peningar? Orkustofnun hefur nýlega verið falið að vera einhver umsjónaraðili, t.d. að taka á móti milljörðum króna frá flugfélögunum. En hvert fer peningurinn á endanum? Hvert fer hann? Hann fer eitthvert til Evrópusambandsins en það er enginn sem er að borga þennan pening sem ég hef rætt við, og hef ég rætt við marga, sem hefur getað upplýst mig um það hvert peningurinn fer nákvæmlega. Hvert fer hann? Hann fer í einhvers konar sjóði í Evrópusambandinu sem ætlað er að vinna að einhverjum þróunarverkefnum um losun gróðurhúsalofttegunda, ekki í Evrópusambandinu og ekki á Íslandi heldur jafnvel úti um allan heim, í Kína, Indlandi og hvað veit ég. Við þurfum að fá það nákvæmlega á hreint, virðulegur forseti, hvert þessir peningar fara, hvað verður úr þeim og hvernig þeir eru nýttir. Þetta þarf að vera með í jöfnunni þegar menn halda því fram að við séum að fá einhverjar tekjur úr þessu. Þótt Landsvirkjun eða ríkissjóður hafi einhverjar tekjur af ókeypis losunarheimildum, sem þeir fá úthlutað frá Evrópusambandinu, þurfa íslensk fyrirtæki á sama tíma að kaupa losunarheimildirnar, borga þær dýrum dómi. Við höfum, virðulegur forseti, svo að ég gleymi ekki að rifja það upp, líka dæmi um að ríkissjóður þurfi að kaupa losunarheimildir — var það ekki frá Slóvakíu — fyrir mörghundruð milljónir, mig minnir að það hafi verið fyrir skipasiglingar. Eftir þessum tölum öllum, debet og kredit, mun ég kalla á næstu dögum og vil fá skýra útlistun á kostnaði við þetta kerfi.
Árið 2021 kynnti Evrópusambandið hert markmið sín um samdrátt í losun um 55% til ársins 2030. Heildarlosun, hert markmið um 55%. Það þarf ekkert eðlisfræðing eða mikinn snilling til að sjá það að slík markmið eru auðvitað bara markmið um fátækt. Menn ætla bara að gera sig fátækari. Og ég ætla að leyfa mér að fullyrða að það hefur enginn þannig árangur náðst, úr þessu viðskiptakerfi með losunarheimildir, í samdrætti í losun sem heitið getur. Allt að einu ætlar Evrópusambandið að herða þessi markmið og ég man ekki betur en íslensk stjórnvöld hafi líka gert það á síðasta kjörtímabili. Af því að þau gátu ekki uppfyllt markmið um 30% eða 40% var markmiðið hert, upp í 50% líka. Menn mega ekki vera minni menn en aðrir. Og jafnvel þótt Ísland hafi fyrir löngu staðið að sínum orkuskiptum og sé heimsmeistari þegar kemur að nýtingu sjálfbærra orkugjafa ætla menn samt að berja sig með hríslum á bakið og skammast sín fyrir eitthvað sem ekki er. Vegna þessara hertu markmiða Evrópusambandsins um 55% losun þurfti líka að herða markmið um samdrátt í losun frá þessari starfsemi sem ETS-kerfið gengur út frá, úr 43% upp í 63%. Þetta er allt saman óraunhæft rugl.
Virðulegur forseti. Hvað þetta frumvarp varðar vil ég líka benda á það, og bið hv. nefnd að skoða það sérstaklega, hvort hér sé ekki enn og aftur verið að innleiða einhverja furðulega hvata í þessu máli með því að kveða á um undanþágur frá skyldu til að skila losunarheimildum að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Þetta varðar fyrirtæki sem flytja hér inn koltvísýring í miklum mæli, koltvísýring sem á að vera svo vondur fyrir Ísland og við viljum ekki hafa hér. Þessi félög eru einhvern veginn verðlaunuð fyrir að flytja hann inn og dæla ofan í jörð hér á landi. Það er einhver furðulegur hvati í þessu og ég hvet hv. nefnd til að skoða þetta sérstaklega.