157. löggjafarþing — 23. fundur,  22. okt. 2025.

Störf þingsins.

[15:08]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Mér hefur borist athyglisvert svar frá hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn um kostnað hins opinbera af svonefndri kulnun hjá opinberu starfsfólki. Svarið var einfalt: Ekki er hægt að greina sérstaklega kostnað vegna kulnunar. Skýring hæstv. ráðherra er sú að starfsfólk sanni óvinnufærni vegna veikinda með læknisvottorði en vegna persónuverndar er skiljanlega ekki upplýst um eðli veikinda. Skráning er því almenns eðlis í kerfum hins opinbera. Svarið er ekki síst merkilegt fyrir þær sakir að í eldra svari þáverandi hæstv. heilbrigðisráðherra frá 2023 kom fram að kulnun væri ekki skilgreind af Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni sem sjúkdómur. Því væri til að mynda ekki haldið utan um tölfræði varðandi kulnun hjá embætti landlæknis. Kulnun er fremur sögð vera ástand sem tengist vinnuumhverfi. Mikil umræða og umfjöllun hefur verið um kulnun í starfi á undanförnum árum. Því er jafnvel haldið fram að um vaxandi vandamál sé að ræða en vissulega er erfitt að meta hvort það sé staðan eða hvort fyrirbærið sé einfaldlega meira í umræðunni. Í samtölum mínum á vinnustöðum hefur jafnvel verið rætt um faraldur. Þetta á sér stað á sama tíma og meðalvinnustundum vinnandi fólks hefur fækkað og fer fækkandi.

Virðulegi forseti. Samkvæmt þeim svörum sem ég hef fengið hér í þinginu er kulnun ekki skilgreindur sjúkdómur. Hins vegar virðast læknar skrifa upp á vottorð vegna ástandsins en hluti þeirra beiðna sem berast VIRK Starfsendurhæfingarsjóði á hverju ári tengjast kulnun eða 5% árið 2024. Við virðumst litlar sem engar upplýsingar hafa um umfang þessa ástands, kulnunar, hvort sem við lítum til einstaklinga eða vinnustaða sem verða fyrir áhrifum af brotthvarfi vegna þessa. Það finnst mér umhugsunarvert.