157. löggjafarþing — 23. fundur,  22. okt. 2025.

Störf þingsins.

[15:28]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Á opnum fundi í hv. efnahags- og viðskiptanefnd þingsins sagði seðlabankastjóri að væru menn ósáttir við lög og reglur varðandi verðbólgumarkmið Seðlabankans þyrfti Alþingi að breyta lögunum. Þetta kann að vera rétt. En áður en til þess kemur er rétt að vekja athygli á að í fjölda Evrópuríkja er verðbólga á svipuðu róli og hér og jafnvel hærri. Það á m.a. við um Litháen, Ungverjaland, Lettland, Bretland og síðan eru Noregur og Holland ekki langt undan. Í engu þessara landa eru stýrivextir í 7,5%. Það er áhugavert að bera saman Ísland og Bretland þar sem verðbólga er á svipuðu róli en engu að síður eru stýrivextir 88% hærri hér en í Bretlandi. Seðlabankinn virðist því beita öfgakenndari vaxtahækkunum en þekkist á öðru byggðu bóli í Evrópu ef frá eru talin stríðshrjáð ríki.

Frú forseti. Vaxtaokrið hefur afleiðingar. Hér þurfa minni fyrirtæki að greiða vexti sem eru ríflega 10% svo árum skiptir. Þau hafa auðvitað engin önnur úrræði en að hleypa kostnaðinum út í verðlagið. Það ætti því ekki að koma neinum jarðtengdum fjármálasérfræðingi á óvart að vaxtastefnan nær ekki tilætluðum árangri. Það blasir við að verðbólgan hér er að mestu drifin áfram af skorti á húsnæði og skorti á samkeppni. Því verður hún varla kveðin niður með því að leggja stein í götu byggingu húsnæðis sem ætti að minnka þá húsnæðisþröng sem uppi er á markaðnum.

Á morgun er ferðaþjónustudagurinn. Ef allt væri með felldu stæði ferðaþjónustan, sem er útflutningsgrein, í miklum blóma, en þrátt fyrir mikinn fjölda ferðamanna um land allt grefur vaxtastefnan augljóslega undan gróskumiklum rekstri og kemur sömuleiðis (Forseti hringir.) í veg fyrir frekari fjárfestingar í greininni. Fjárfesting dagsins í dag eru lífskjör framtíðar.