Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Við lestur á fundargerðum peningastefnunefndar Seðlabankans aftur í tímann kemur í ljós að það er misjafnt eftir tímabilum og jafnvel milli funda til hvaða viðmiða nefndin horfir við vaxtaákvarðanir sínar og er oft frekar óljóst hvaða áhrif og vægi hvert og eitt þeirra hefur við ákvarðanatöku nefndarinnar. Á heimasíðu Seðlabankans kemur einnig fram að það getur verið breytilegt frá einum tíma til annars hvaða vextir teljast vera meginvextir hans og það er ekkert sem segir til um hvað ræður ákvörðunum um slíkar breytingar sem virðast vera æðimatskenndar. Á opnum fundi peningastefnunefndar með efnahags- og viðskiptanefnd í gær var rætt og hreinlega viðurkennt að vaxtaákvarðanir byggðust á dómgreind nefndarmanna og misjafnt við hvað þær miðuðust hverju sinni. Þetta er vægast sagt athyglisvert í ljósi þess að Hæstiréttur dæmdi að vaxtaskilmálar lána væru ólöglegir þar sem þeir væru ekki skýrir, aðgengilegir, gagnsæir, fyrirsjáanlegir og byggðu ekki á hlutlægum og sannreynanlegum viðmiðum, en ákvað á sama tíma að þeir ættu að byggja á Seðlabankavöxtum sem eru bara alls ekkert skýrir, aðgengilegir, gagnsæir, fyrirsjáanlegir og byggja ekkert endilega á hlutlægum og sannreynanlegum viðmiðum eins og lög um fasteignalán kveða skýrt á um. Hvernig gengur það upp?
Þetta er sérstaklega alvarlegt þegar haft er í huga að í staðfestu dæmi um 50 millj. kr. lán sem tekið var fyrir um þremur árum hefur viðkomandi greitt heilar 7 milljónir umfram samningsvexti eða að meðaltali 194.000 á mánuði. Seðlabankinn vill ná vísitölunni úr 4,1% niður í 2,5%, sem myndi spara heimili með 500.000 kr. útgjöld um 8.000 kr. á mánuði en spara heimili með 100.000 kr. um 1.600 kr. útgjöld. 200.000–500.000 kr. aukinn húsnæðiskostnaður á heimili til að bjarga þeim undan 8.000 kr. auknum útgjöldum er 25- til 62-föld sú upphæð í hverjum einasta mánuði. Hvernig geta 200.000–500.000 kr. á mánuði verið réttlætanlegur fórnarkostnaður til að ná útgjöldum niður um 1.600–8.000 kr.? spyr sú sem ekki veit og skilur engan veginn þessa svokölluðu hagfræði.