Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Það er ánægjulegt hér á bleika deginum að sjá hversu margir þingmenn hér hafi haft tilmæli mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar að engu og mætt á þessa samkomu í bleiku. Ég ætla hins vegar að gera að umræðuefni hér alveg kostulega frétt sem var í Morgunblaðinu á bls. 4 í dag sem varðar flokkun drykkjarferna. Lítil frétt sem lætur lítið yfir sér en er með ólíkindum að lesa. Hér er frétt af því að tveggja ára tilraun hafi ekki skilað nokkrum einasta árangri en miklum kostnaði, þ.e. sú tilraun að láta erlent fyrirtæki flokka drykkjarfernur sérstaklega frá öðrum pappír og senda í sérhæfða endurvinnslu, þetta hafi skilað litlum árangri en kostað mikið. Þessu hafa menn komist að eftir tvö ár. Eftir tvö ár og um 70 millj. kr. kostnað á ári hefur Sorpa komist að því að þetta sé óhagkvæmt og eftir að hafa fengið skýrslu frá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands. Hagfræðistofnun Háskóla Íslands var látin framkvæma ábatagreiningu á kostum þess og göllum að fara þessa leið. 23 blaðsíðna skýrsla frá Hagfræðistofnun skilaði þeirri niðurstöðu í stuttu máli, virðulegur forseti, að þetta væri galin ráðstöfun. Það væri eina vitið að brenna þessa fernur. Þetta tók Sorpu tvö ár að átta sig á. Allan þennan tíma hefur almenningi verið talin trú um að þetta sé málið og það sé mikilvægt að flokka þessa fernur. Það er meira að segja haldið áfram. Því er áfram haldið að almenningi, þrátt fyrir þetta, þrátt fyrir að menn ætli ekki að flokka þessa fernur sérstaklega, og vinsamlegast óskað eftir því við almenning að hann haldi áfram að flokka þessa fernur. Þetta er auðvitað galið, virðulegur forseti.