borgarstefna fyrir árin 2025--2040.
Forseti vill að gefnu tilefni benda hv. þingmönnum allra flokka á að samkvæmt þingskapalögum fjöllum við um atkvæðagreiðsluna, um afstöðu þingflokka okkar til þess máls sem þá verður tekið til atkvæða. Þetta hefur svolítið gengið úr lagi hér á hinu háa Alþingi á síðustu misserum og árum. Svo er líka gott að kunna að slökkva á símanum sínum. Ég mun héðan í frá brýna hv. þingmenn að huga að því undir hvaða lið þeir eru að ræða málin í ræðustól, hvort sem það er fundarstjórn, sem varðar þá fundarstjórn forseta, hvort verið er að ræða um atkvæðagreiðsluna, sem varðar þá afstöðu þingflokksins til tiltekins máls, ellegar þegar þingmaður gerir grein fyrir atkvæði sínu, það gerist yfirleitt bara þegar téður þingmaður er ósammála félögum sínum og þarf að gera grein fyrir því hvers vegna svo sé. Þannig eru reglurnar og ég bið hv. þingmenn að virða þær og tileinka sér þær. En þessari umræðu verður að sjálfsögðu lokið.