157. löggjafarþing — 23. fundur,  22. okt. 2025.

borgarstefna fyrir árin 2025--2040.

85. mál
[15:46]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég fjallaði einmitt um mína afstöðu til þessa máls í gær í ræðu, hvað mér þótti vanta, en kem hér glaður og geri grein fyrir því af hverju ég mun í það minnsta sitja hjá hér á eftir. Það er númer eitt að ég tel þetta vera algjörlega óþarft mál. Ef ríkisstjórnin vill sýna það í verki að hún hafi hér borgarstefnu þá bara setur hún það inn í þær áætlanir sem er fjallað um í þessu; byggðaáætlun og samgönguáætlun og annað slíkt, lögboðnar stefnur sem eru hér og er hægt að gera. En það sem mér finnst kannski athugaverðast við þessa þingsályktunartillögu, og ég get því ekki greitt henni atkvæði, er að það eru engar skyldur settar á höfuðborgina. Það kemur ekkert fram um hvaða skyldur eru, eins og það að hafa hér flugvöll eða greiðar stofnbrautir um höfuðborgina, aðgengi að heilbrigðisþjónustu, stjórnsýslunni og öðru slíku.