157. löggjafarþing — 24. fundur,  22. okt. 2025.

fornskip.

166. mál
[16:00]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni kærlega fyrir að taka upp þetta sérdeilis áhugaverða mál hérna í þingsal. Hv. þingmaður spurði þriggja meginspurninga og ég ætla að leitast við að svara þeim í þeirri röð sem þær voru bornar fram.

Í fyrsta lagi spyr hv. þingmaður hvort ráðherra telji heppilegt að miða við ártal yfirhöfuð þegar skip og bátar eru flokkaðir sem fornminjar. Ég tel svo vera. Skip eða bátar frá því fyrir 1950 njóta friðunar sökum aldurs, þetta fór hv. þingmaður yfir, og það að miða við fast ártal er fyrirsjáanlegt og hlutlægt viðmið. Þróunin í tilfelli friðunar annarra menningarminja á grundvelli aldurs hefur verið sú að falla frá hlaupandi 100 ára reglu en miða þess í stað við fast ártal og þá er viðmiðunarártalið valið á faglegum forsendum. Nýlegt dæmi um þetta er breyting á lögum nr. 80/2012, árið 2022, sem hv. þingmaður vísaði til, þar sem aldursfriðun húsa og mannvirkja var fest við ártalið 1923. Hv. þingmenn muna kannski eftir frumvarpi sem ég flutti á síðasta löggjafarþingi þar sem voru lagðar til breytingar á þessu.

Til viðbótar almennri vernd, í þessu tilviki friðun sem tekur mið af föstu ártali, er hægt að beita friðlýsingum í minjavörslunni en þær eru þó sértæk vernd fyrir fornleifar og byggingar með mjög mikið varðveislugildi. Sé skip eða bátur friðlýst þá fellur það undir lög um menningarminjar, þ.e. ákvæði um friðlýstar fornminjar. Það eru hins vegar engin dæmi um friðlýsingu báta og skipa á grundvelli laga nr. 80/2012 enn sem komið er.

Hvaða aðrar aðferðir en fast ártal telur ráðherra heppilegar til viðmiðunar? spyr hv. þingmaður. Eins og ég nefndi þá tel ég að fast ártal hafi marga kosti. Slík vernd er, eins og ég nefndi, fyrirsjáanleg. Auðvitað myndi það auka vernd yngri skipa til lengri tíma ef það yrði byggt á hlaupandi ártali, t.d. á grundvelli 75 ára reglu, en slík breyting væri þó hvorki markviss né sértæk og langur tími gæti liðið þar til kæmi að aldursfriðun yngstu bátanna. Það að færa viðmiðunarártalið t.d. til 1970 myndi ná til dekkaðra eikarbáta frá því tímabili en líkast til fjölga friðuðum bátum um of í það heila, enda er varðveislugildi þeirra mjög misjafnt eins og gengur og gerist.

Hvað varðar aðferðir sem eru viðhafðar erlendis þá er allur gangur á því. Sums staðar er gerður greinarmunur á tegundum skipa, það er auðvitað ein leið, eða hvort um sé að ræða innlenda smíði eða innflutt skip, það er eitthvað sem væri hægt að skoða líka.

Samkvæmt fornbátaskrám hafa 300 bátar sem eru eldri en 75 ára varðveist, þeir eru hugsanlega fleiri. Það er erfitt að leggja mat á heppilegar aðferðir sem ná markmiðum um vernd bátaarfsins á meðan frekari gögn og upplýsingar skortir en mikilvægt er að halda áfram þeirri góðu vinnu sem er nú þegar hafin við kortlagningu og skráningu bátaarfsins, sem er grundvöllur fyrir frekari ákvarðanatöku, svo sem friðlýsingu einstakra báta.

Hv. þingmaður spurði loks um málsmeðferðina við friðlýsingu skipa og báta. Minjastofnun Íslands hefur heimild til að leggja formlega til friðlýsingu skipa og báta sem hafa menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi. Hv. þingmaður spyr líka hvað sé lagt til grundvallar við þessar ákvarðanir. Endanleg ákvörðun er auðvitað hjá ráðherra en það er Minjastofnun sem leggur til friðlýsinguna og hefur talsvert svigrúm til að leggja mat á það út frá ákveðnum viðmiðum hvort bátar hafi menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi og varðveislugildi er þá meginviðmiðið sem er lagt til grundvallar. Dæmi um einstaka þætti sem eru skoðaðir eru tengsl við menningarsögu, fágæti, upprunaleiki og ástand. Þetta eru kannski þeir þættir sem eru helst skoðaðir. En það er auðvitað þannig að þótt friðlýsingin sé unnin af Minjastofnun þá getur utanaðkomandi aðili vakið athygli stofnunarinnar á fornminjum sem viðkomandi telur friðlýsingarverðar og ég hvet hv. þingmann og áhugamenn um þessi mál til dáða í þeim efnum.