bálför og bálstofa.
Frú forseti. Það er margt sem breytist í samfélaginu okkar með tímanum en eitt stendur óbreytt og það er að við þurfum öll á einhverjum tímapunkti að kveðja þessa jörð. Því skiptir máli hvernig samfélagið bregst við þeirri staðreynd og hvernig við tryggjum virðingu, jafnræði og faglega umgjörð í kringum það ferli.
Í dag er aðeins ein bálstofa starfrækt á Íslandi, á höfuðborgarsvæðinu. Fyrir marga sem búa fjarri Reykjavík er það hvorki raunhæfur né aðgengilegur kostur að velja bálför. Það má eflaust færa rök fyrir því að hagstæðast sé að hafa eina bálstofu í landinu en í því ljósi er einnig mikilvægt að huga að jafnræði milli landsmanna og landshluta. Margir myndu kjósa bálför ef kosturinn væri til staðar en við þurfum að skapa þær forsendur. Við vitum líka að kirkjugarðar eru dýrmætt landsvæði. Með fjölgun landsmanna eykst þörf fyrir greftrunarlóðir og þar með þrýstingur á sveitarfélög að leggja til nýtt land undir kirkjugarða. Kistugrafir taka umtalsvert meira pláss en duftker og samkvæmt spám gætu allt að 70% landsmanna kosið bálför árið 2040. Í dag er hlutfall þeirra sem kjósa að fara í bálför mun hærra hér á Reykjavíkursvæðinu en á landsbyggðinni. Það verður líka að huga að því að draga verulega úr landþörf sveitarfélaga og breyta skipulagsþörf til framtíðar. Þetta kallar auðvitað líka á endurskoðun á lögum og reglum um kirkjugarða og bálstofur, sem ég veit að hæstv. ráðherra hefur tekið jákvætt í, því að núverandi fyrirkomulag er einfaldlega ekki í takt við þá þróun sem blasir við okkur.
Það er líka mikilvægt að huga að fjármögnuninni. Þetta má ekki vera þannig að bygging nýrrar bálstofu á höfuðborgarsvæðinu komi niður á lögbundnum rekstri kirkjugarða eða að fjármagn sé fært til innan kerfis án þess að viðbót fylgi með. Þvert á móti þurfum við líka að tryggja það að uppbygging bálstofu sé hluti af vissri framtíðarsýn um jafnræði og hagkvæmni en ekki aukakostnaður fyrir þau svæði þar sem hún kemur. Við þurfum einnig að ræða hvort og hvernig sveitarfélög geta tekið þátt í slíkri uppbyggingu í ljósi þess að þau bera aðeins skyldu til að leggja til land undir kirkjugarða en ekki að byggja eða reka bálstofu. Ef bálfarir verða algengari og draga úr þörf á frekara landi sveitarfélaga hlýtur spurningin að vakna hvort sveitarfélög geti átt hlut að máli bæði vegna ávinnings og ábyrgðar.
Virðulegi forseti. Þetta er vissulega óvenjulegt mál en þetta snertir okkur öll. Í ljósi þess sem ég hef komið að hér fyrr í ræðu minni er tímabært að hefja samtalið um hvernig við sjáum þessa hluti þróast til framtíðar. Ég vil því spyrja hæstv. dómsmálaráðherra: Telur ráðherra tilefni til að endurskoða lög og reglur með hliðsjón af spám sem liggja fyrir um að allt að 70% landsmanna muni kjósa bálför fyrir árið 2040? Hyggst ráðherra tryggja að bálför verði raunhæfur kostur fyrir alla landsmenn óháð búsetu og þá hvernig? (Forseti hringir.) Telur ráðherra tilefni til að unnt sé að koma á fyrirkomulagi um niðurgreiðslur fyrir íbúa á landsbyggðinni sem kjósa bálför í ljósi þess að talið er hagkvæmast að hafa (Forseti hringir.) aðeins eina bálstofu? Og að lokum: Hver er afstaða ráðherra til þess að sveitarfélög taki þátt í kostnaði við byggingu eða rekstur bálstofu í ljósi þess að sveitarfélögum er aðeins skylt að leggja til land (Forseti hringir.) undir kirkjugarðsstæði en ekki að byggja eða reka bálstofu?
(Forseti (BHar): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða tímamörk.)