157. löggjafarþing — 24. fundur,  22. okt. 2025.

bálför og bálstofa.

133. mál
[16:16]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen kærlega fyrir þessa spurningu og er henni sammála um mikilvægið. Mér fannst hún í sjálfu sér ramma þau sjónarmið ágætlega inn sem hér eru undir hvað varðar virðingu, jafnræði og faglega umgjörð varðandi endalok lífs og vilja fólks til að fá að ráða sínum málum. Þetta eru fjórar spurningar og ég ætla að gera atlögu að þeim en nái ég ekki að svara þeim öllum í fyrri ræðu þá mun ég nota seinni til að ljúka máli mínu.

Í dag eru í gildi lög um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu og samkvæmt þeim er sveitarfélögum skylt að láta í té án endurgjalds landsvæði undir kirkjugarða. Í lögunum segir jafnframt að hvert grafarstæði fyrir kistugröf og grafarstæði duftkerja skuli vera af ákveðinni stærð. Landsvæði sem fer undir duftgrafir er auðvitað talsvert minna en einnig er heimilt að jarðsetja kerin í eldra leiði hjá vandamönnum ef þess er óskað. Það gefur því augaleið að eftir því sem brennslum fjölgar þarf minna landsvæði undir kirkjugarða. Það er líka rétt sem hv. þingmaður nefnir að við sjáum að hér er að verða viðhorfsbreyting hjá þjóðinni. Þannig má nefna að í fyrra, 2024, voru um 1.200 bálfarir á Íslandi. Spár Kirkjugarða Reykjavíkur gera nú ráð fyrir því að eftir 15 ár verði þær jafnvel um 3.000 á ári. Þessar spár byggja á því hvernig þróunin hefur verið á liðnum árum þar sem við höfum séð stíganda í þessum efnum og ekki síst á höfuðborgarsvæðinu.

Hvað varðar mögulega endurskoðun laga geri ég ráð fyrir því að hv. þingmaður sé þar ekki síst með í huga þessa reglu varðandi sveitarfélögin, um þá skyldu þeirra að láta endurgjaldslaust í té þetta landsvæði. Þar mætti kannski halda því fram að í kringum ekki síst fjölmennari sveitarfélögin séu tækifæri fyrir sveitarfélög til að styðja við þetta val fólks um bálfarir, mögulega á þeim grunni að annars færu verðmæt eða stærri landsvæði undir kirkjugarða. Í kringum þessi mál held ég því að væri tækifæri fyrir samvinnu og samstarf ríkis og sveitarfélaga, af því að hér fara hagsmunir saman, ef svo má segja.

Lög um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu eru komin nokkuð til ára sinna og það blasir við í mínum huga að þau þarfnast rýni og jafnvel heildarendurskoðunar. Ég held að landrými undir kirkjugarða sé hiklaust málefni sem taka þarf til skoðunar þegar lögin sæta þessari rýni. Eins og hv. þingmaður nefnir er staðan sú að á landinu er ein líkbrennsla starfandi. Hún er staðsett á höfuðborgarsvæðinu og hún þjónustar alla landsmenn. Bálfarir hafa verið gjaldfrjálsar fyrir einstaklinga búsetta á Íslandi en raunveruleikinn er sá að flestir, eða fleiri, velja kistugreftrun á landsbyggðinni. Samkvæmt upplýsingum frá Kirkjugörðum Akureyrar frá því í fyrra voru t.d. aðeins um 18% sem kusu bálför á meðan hlutfallið var 60% á höfuðborgarsvæðinu. Þá þarf auðvitað að rýna þessi sjónarmið sem hv. þingmaður nefnir, hvað það er sem veldur. Er það virkilega svo að sjónarmið og afstaða sé þetta ólík eða erum við að tala um einhverja innbyggða skekkju um valmöguleika?

Eins og ég segi sé ég hér flöt á því að sveitarfélög og ríki taki kannski höndum saman hvað þetta varðar, því það er auðvitað atriði að hér eins og annars staðar í lífinu sé markmið okkar að ná fram jafnræði. Þá á ég við að kostnaður við útför sé svipaður fyrir fólk hvar sem það er statt á landinu. Ég ítreka aftur að ég held að það sé málefnalegt að hugsa sem svo að samfélagið, ríki og sveitarfélög, styðji við bálfarir með einum eða öðrum hætti með það í huga að ávinningurinn sé að minna landsvæði fari undir kirkjugarða. Svo eru önnur sjónarmið líka sem styðja ekki síður við þennan valkost en auðvitað er þetta alltaf persónulegt val.

Ég hugsa að ég láti þetta duga núna en ætla svo í seinni ræðu að fjalla um þá bálstofu sem þegar er starfandi og áframhaldandi spurningar þingmannsins.