157. löggjafarþing — 24. fundur,  22. okt. 2025.

bálför og bálstofa.

133. mál
[16:21]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir þessa góðu fyrirspurn og hæstv. dómsmálaráðherra fyrir að vera hér og svara. Ég átti orðastað við hv. þm. Þórarin Inga Pétursson um einmitt þetta fyrir ekki svo löngu síðan þar sem ég bar það sem við erum að ræða um hér saman við sjúkrahúsþjónustu. Við erum með þjóðarsjúkrahúsið á höfuðborgarsvæðinu og það er ekki að ástæðulausu að svo sé, það er bara mikið af sérfræðiþjónustu sem er ekki hægt að bjóða upp á úti um allt land. Hvað gerum við þá í staðinn til að tryggja öllum aðgengi að þessari þjónustu sem á að þjóna öllum landsmönnum? Jú, við náttúrlega niðurgreiðum ferðakostnað fyrir sjúklinga. Í þessu tilfelli erum við að tala um bara eina bálstofu sem eðlilega er staðsett á höfuðborgarsvæðinu og þá finnst mér það vera byggðajöfnunarmál að við t.d. niðurgreiðum kostnaðinn við að flytja þann látna til bálstofunnar. Þetta er byggðajöfnunarmál og ég fagna því að hæstv. dómsmálaráðherra, að mér heyrist, taki ágætlega vel undir þær hugmyndir.