157. löggjafarþing — 24. fundur,  22. okt. 2025.

bálför og bálstofa.

133. mál
[16:22]
Horfa

Tómas Þór Þórðarson (S):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir að vekja máls á þessu og hæstv. ráðherra fyrir að taka þátt með góðum svörum. Ég er ekkert svo djúpt í tölunum í þessu en það sem mér finnst hrikalega áhugavert við þetta er þessi spá um 70%, hvað það eru margir sem velja þetta nú þegar og hvernig það gæti aukist. Það yrði náttúrlega ótrúlega og gríðarlega landfrekt og mér finnst liggja beinast við að bálstofum verði fjölgað. Svo er fólk kannski úti á landi, ég tala nú ekki um alla leið á Austurlandi, og þá er rosalega langt að fara ef þú ætlar að kjósa bálför. Maður heldur líka að þetta gæti aukist enn frekar ef fólk fengi alvöruval. Ég gæti trúað því að fólki sem býr langt frá höfuðborgarsvæðinu líði ekkert endilega eins og bálför sé raunverulegur kostur, ekki þegar við erum að tala um 600, 700, 800 km. Án þess að ég vilji vera að tala fyrir fólkið þá er þetta eitthvað sem ég fór aðeins að hugsa, sér í lagi þegar maður sér nú þegar, bara strax, þessar tölur sem við erum að horfa á núna.