bálför og bálstofa.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma hérna og taka þátt og fyrir svörin. Ég veit að þetta eru margar spurningar sem þarf að fara yfir og skammur tími. En eins og ég skildi hæstv. ráðherra talaði hún fyrir því að það væri mjög mikilvægt að eiga samvinnu á milli sveitarfélaga og ríkis í tengslum við þetta af því að það er jú alveg rétt að það eina sem er öruggt er að þeim látnu mun fjölga og það fer meira landsvæði undir slíkt. Við getum ekki haldið áfram endalaust, við þurfum að taka þessa umræðu og vanda okkur við það.
Eins og ég skildi hæstv. ráðherra, er hún þá að meina það að sveitarfélög eigi að taka þátt í uppbyggingu fleiri bálstofa eða að sveitarfélögin eigi að taka þátt í kostnaðinum við flutninginn á hinum látnu hingað til þeirra sem kjósa brennslu? Bara svo það liggi fyrir því að þetta eru einmitt sláandi tölur sem hæstv. ráðherra fór yfir. Það eru 18% fyrir norðan sem kjósa þessa leið en 60% hér og það fer vaxandi. Á hverju hvílir skekkjan? Í þeim samtölum sem ég hef átt við einstaklinga í kringum þetta þá er það oft þessi hinsta ferð til Reykjavíkur sem fólki stundum á landsbyggðinni líkar ekki við eða jafnvel líka bara kostnaðurinn og fyrirhöfnin. Oft eru aðstandendur að standa í þessum flutningi, oft á viðkvæmum tímum í lífi fólks, þannig að það er spurning hvernig við getum jafnað leikinn. Hvernig getum við komið til móts við fólk af landsbyggðinni sem kýs þessa leið, þar sem við getum mætt því af virðingu og einhvern veginn með jöfnuð að leiðarljósi, því að ef ríkið tekur þá ákvörðun að hér skuli bara vera ein bálstofa í landinu á vissum forsendum þá er það gott og gilt, en hvernig getum við þá mætt fólki annars staðar á landinu?