157. löggjafarþing — 24. fundur,  22. okt. 2025.

bálför og bálstofa.

133. mál
[16:26]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmönnum fyrir umræðuna. Eins og með mörg knýjandi samfélagsleg málefni þá stöndum við engu að síður alltaf frammi fyrir kostnaði. Í dag er starfandi ein bálstofa. Varðandi kostnað við byggingu og rekstur hennar er það ríkið sem hefur staðið undir kostnaði af rekstri bálstofunnar á grundvelli samkomulags sem gert var við kirkjugarðaráð árið 2005. Bálfarir hafa verið gjaldfrjálsar fyrir einstaklinga með búsetu á Íslandi. Þarfagreining núna, þegar fyrirhugað er að sú bálstofa sem er starfandi uppfyllir ekki kröfur sem gerðar eru til hennar, hefur engu að síður sýnt fram á að sem stendur beri Ísland sannarlega ekki mikið meira en eina bálstofu.

Núverandi bálstofa er í Fossvogi en við þekkjum þá sögu að Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur tekið starfsleyfið til endurskoðunar og hert skilyrði fyrir starfseminni. Þau skilyrði hafa verið þannig hamlandi að þau geta beinlínis haft neikvæð áhrif, t.d. á heilbrigðisstofnanir. Það er búið að gera viljayfirlýsingu um viðbótarframlag til að standa undir kostnaði við kaup á tveimur líkbrennsluofnum og viðbyggingu við núverandi húsnæði Kirkjugarða Reykjavíkur í Gufunesi, auk annarra breytinga í húsnæðinu. Niðurstaðan var sú að gera þetta því það væri fljótlegasta leiðin í mjög erfiðri og þröngri stöðu og sú hagkvæmasta í leiðinni. Þarna er kostnaður fyrir hendi og viðfangsefnið er hvernig hægt sé að ná utan um hann því við sjáum að líka að líkhúsin hafa verið í vandræðum. Ég er með frumvarp hér inni á þingi til að taka á þeirri stöðu.

Hitt sjónarmiðið sem hv. þingmaður nefndi í fyrri ræðu sinni er virðingin og jafnræðið. Við verðum að horfa á byggðasjónarmiðin og rýna af alvöru hvað það er sem veldur þessum mikla mun og jafnframt hafa í huga að hér erum við með samfélagslega þjónustu. Mín óskastaða væri sú að ríki og sveitarfélög gætu tekið höndum saman um það að nálgast þetta verkefni til þess að tryggja það eftir bestu mögulegu getu og burðum að jafnræði (Forseti hringir.) íbúa landsins sé tryggt sem best.