eftirlit með skráðum trúfélögum.
Frú forseti. Ég held að það sé full ástæða til þess, eins og hv. þingmaður nefnir, að hafa það í huga að það sem gerist á Norðurlöndum komi jafnan hingað líka. Raunar er það svo, t.d. í samhengi við afbrot, að við erum alltaf að sjá það skýrar að þessi mál voru kannski tíu ár að berast hingað. Þessi kafli er að styttast og styttist. Varðandi lögin eins og þau líta út í dag, hvort þessi skilyrði séu tæknilegs eðlis, þá minni ég á að hér er talað um að tilgangur skráðs félags megi ekki fara gegn lögum, góðu siðferði eða allsherjarreglu. Þarna er ákveðið mat þegar komið inn, það er eitt.
Síðan er það svo að þessum lögum til viðbótar erum við með hegningarlög þannig að hægt sé að taka á afbrotum ef ástæða er til að hafa áhyggjur af slíku. Þú ert annars vegar með tilgang félagsins og síðan ertu með alla okkar almennu og hefðbundnu refsilöggjöf. Af því að hér kom fram umfjöllun um tiltekið trúfélag þar sem dómur Hæstaréttar féll á þessu ári, við erum að velta því fyrir okkur: Eigum við verkfærin? Eru þau tæk? Þá var það nú þannig í því máli að þar var sakfellt. Þar féll dómur upp á 18 mánuði og tvö ár, þar voru eignir gerðar upptækar. Það þótti sýnt fram á að þetta ætlaða trúfélag stóð ekki undir nafni nema síður væri. Eins og ég segi, þessi lagabreyting tók gildi núna í byrjun árs og það er ekki komin mikil reynsla á hana. Þó er það þannig að sýslumaður hefur í tvígang fellt skráningu trúfélags úr gildi. Það er niðurlagningarferli í gangi hjá sýslumanni gagnvart þremur trúfélögum. Eins og ég nefndi hérna áðan er ákveðið ferli um frest til að andmæla og því um líkt. Það finnst mér gefa vísbendingu um, að teknu tilliti til fjölda félaga á Íslandi, að þetta sé eftirlit sem hefur burði til að ná fram markmiði sínu. En sannarlega þurfum við að vera vakandi á þessu sviði eins og öðrum.