rekstur fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni og hæstv. ráðherra fyrir spurningar og svör. Það gerist núna aftur og aftur að við erum að ræða hér mál sem tengjast þessu fyrirtæki sem er gríðarlega stórt og hefur gríðarlega mikil völd og gríðarlega mikla ábyrgð. Í þessu tilfelli er verið að ræða þá sem eru að framleiða íslenska vöru og keppa á íslenskum markaði en það eru ýmis önnur mál líka. Þá vekur athygli að við virðumst vera komin með það fyrirkomulag að við getum ekki haft nein áhrif á það. Það hljómar kannski mjög vel fyrir einhverja að þú ert með — ég segi ekki að þetta sé lottó en þetta er orðið eins langt frá stjórnmálum eins og getur orðið. Þú ert með einhverjar nefndir sem velja stjórnarmenn en auðvitað er það hæstv. ráðherra sem ber ábyrgð á þessu öllu saman. En hæstv. ráðherra, hér eins og oft áður, segir bara: Heyrðu, það er þarna stjórn sem ég hef í rauninni voða lítið með að segja. Gefum okkur það að fyrirtæki fari í einhverju þannig fram að augljóslega þarf að grípa inn í að mati flestra; hvað er hægt að gera? Og mun hæstv. ráðherra — eins og í þessu tilfelli þá sýnist mér að hv. þingmaður og Félag atvinnurekenda hafi komið fram með athugasemdir sem eru bæði málefnalegar og gera það að verkum ef eitthvað þarf að gera. Hvað þarf að gera? Hvað er hægt að gera? Er ekkert hægt að gera? (Forseti hringir.) Við sem eigum að gæta hagsmuna almennings, virðulegur forseti, hér í þessu landi, eigum við bara eins og allir hinir að fylgjast með og vona hið besta, því að enginn er með völd í þessum málum? Ég er ekki að biðja um að hæstv. ráðherra fari að (Forseti hringir.) skipta sér af stóru sem smáu í rekstri fyrirtækisins.
(Forseti (BHar): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða ræðutímann.)