157. löggjafarþing — 24. fundur,  22. okt. 2025.

rekstur fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli.

95. mál
[16:57]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir þessa mikilvægu umræðu hér. Isavia er stórt og mikilvægt innviðafyrirtæki hér á landi sem hefur stóru hlutverki að gegna og hefur haft mikinn metnað í að byggja upp sína aðstöðu til þess að geta svarað vaxandi efnahagslífi á Íslandi og tryggja aukinn hagvöxt. Þetta er mjög mikilvæg starfsemi. En að þessi þjónusta sé eingöngu í eigu ríkissjóðs og við séum ekki með fagfjárfesta með okkur í þessu hleypir okkur að þessu vandamáli sem við ræðum hér í dag. Ástæðan fyrir því að við erum komin með fasta gjaldtöku á bílastæðunum og þessi ströngu útboð varðandi verslunarrýmið er til að hámarka hagnaðinn því félaginu vantar hlutafé til að standa undir þeim framkvæmdum sem eru á staðnum. Allt viðskiptaumhverfi flugvallarins og rekstrarumhverfi yrði miklu hagkvæmara og skynsamlegra og heilbrigðara ef við myndum (Forseti hringir.) fá fagfjárfesta með okkur inn í félagið og þá þyrfti ekki að ræða svona vandamál hér á hinu háa Alþingi.