157. löggjafarþing — 24. fundur,  22. okt. 2025.

vörugjald af ökutækjum.

204. mál
[17:07]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Sigríður Á. Andersen) (M):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að óska hæstv. fjármálaráðherra til hamingju með afmælið í dag, þakka honum fyrir að gefa okkur tækifæri til að hitta hann hér í þingsal til að ræða m.a. þetta áhugaverða mál sem er vörugjöld á bifreiðar. Það er rétt í upphafi að hafa nokkrar staðreyndir á hreinu. Ég þreytist ekki á að nefna það að losun frá vegasamgöngum telur einungis örfá prósent af heildarlosun á Íslandi. Þessi losun fer minnkandi með nýrri tækni, bæði vegna hreinorkubíla, sem fjölgar nú hér, og einnig vegna betri bensín- og dísilvéla. Tæknin heldur áfram að þróast án inngripa stjórnvalda og losun frá vegasamgöngum mun halda áfram að minnka. Þess vegna finnst mér blóðugt að horfa fram á milljarðaeyðslu í því að hraða þessari þróun. Hvers vegna að eyða milljörðum í að hraða þessari þróun? Þessir milljarðar hafa m.a. falist í niðurgreiðslum ríkisins, skattgreiðenda auðvitað, á kaupum á rafbílum. Þessir milljarðar hafa líka falist í verulegri neyslustýringu með ofurskattlagningu á bifreiðar, einkum jarðefnaeldsneytisbíla, og með vörugjöldum á eldsneyti, ofurskattlagningu á eldsneyti.

Nýjasta neyslustýringin er í farvatninu. Hún er tillaga hæstv. fjármálaráðherra um hækkun vörugjalda á sumar bifreiðar en niðurfellingu á aðrar. Tillagan sem liggur fyrir hefur mér sýnst eðli máls samkvæmt bitna harðast á hreinum bensín- og dísilbílum, sem þegar bera ofurvörugjöld, þótt þeir losi í rauninni á væntum líftíma jafnvel minna heldur en hreinorkubílar. En hvað varðar vinsælustu bílana sem ganga fyrir hreinorku, svokallaða „hybrid“-bíla, þá sýnist mér að tillagan myndi bitna harðast á litlu sparneytnu bílunum sem gera má ráð fyrir að muni hækka um 20% í verði. Stórir þungir bílar munu hækka eitthvað minna.

Af hverju höfum við yfirhöfuð vörugjöld á bíla? Af hverju látum við ekki skattlagninguna á bensínið duga til að fjármagna vegakerfið? Ef þetta er loftslagsaðgerð þá þarf að svara því hvort þessi niðurgreiðsla og þvingun yfir í rafbíla sem skila litlu eða engu í þágu loftslagsins — það þyrfti líka að taka tillit til heildarkolefnisspors bifreiða, allt frá fyrstu skrúfunni út líftíma. Er það stefna ríkisstjórnarinnar að banna ökutæki sem knúin eru jarðefnaeldsneyti? Hæstv. fjármálaráðherra hefur þrætt fyrir það hér í ræðustól að flokkur hans, Viðreisn, hafi ályktað um það en það gerði Viðreisn á landsþingi sínu árið 2023 , ályktaði um að stefna skyldi að því að hætta nýskráningu jarðefnaeldsneytisbíla á þessu ári. Þá spyr ég: Hvað á efnaminna fólk að gera og fólk sem hefur ekki aðstöðu til þess að hlaða bílana sína, kannski húsmóðirin í Vesturbænum sem á ekki einu sinni bílastæði? Hvað á hún að gera þegar búið er að skattleggja jarðefnaeldsneytisbílana út af markaði?