vörugjald af ökutækjum.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir fyrirspurnina og fyrir heillaóskirnar. Mér er bæði ljúft og skylt að koma hér upp og ræða þessi mál við hana. Ég vil kannski byrja á því að nefna að í óundirbúnum fyrirspurnum þá var rætt örlítið um ályktanir Viðreisnar. Ég tel ekki að ég fari með rangt mál þótt þær kunni einhvern tímann að hafa innihaldið eitthvað annað, en í dag allavega innihalda þær ekkert um bann við bensín- og dísilbílum.
Varðandi vörugjöld á rafmagnsbílum og langtímastefnu íslenskra stjórnvalda sem margar ríkisstjórnir hafa stutt og stuðlað að, að auka vægi innlendra orkugjafa í orkusamsetningu í íslenskum samgöngum, þá held ég að þar séu mun fleiri sjónarmið en einungis umhverfissjónarmiðin sem eru undir. Ísland er í einstakri stöðu. Hér er mikið aðgengi að bæði fremur ódýrri og sjálfbærri orku, orku sem íslensk náttúruskilyrði gera okkur kleift að nýta og í viðsjárverðum heimi er þess vegna ekki bara um að ræða jákvæð áhrif vegna minni losunar í tengslum við notkun slíkra bifreiða sem nýta innlenda orku, heldur einnig ákveðin trygging fyrir stöðugleika.
Sú þróun sem hefur átt sér stað varðandi rafmagnsbíla á undanförnum árum, að bæði drægni þeirra og verð hefur lækkað og gæði þeirra aukist, var í sjálfu sér ófyrirséð. Ég get í þessu sambandi nefnt að á íslenskum markaði í dag er í boði um 130 gerðir rafmagnsbíla en voru 18 árið 2018, að rafmagn sem orkugjafi stendur til boða á öllum heimilum í landinu, að mikið úrval er af hleðslustöðvum í alls konar verðflokkum og að net hleðslustöðva hefur batnað gríðarlega á stuttum tíma. Þannig má t.d. nefna að einungis frá því í maí í fyrra hefur hleðslustöðvum fjölgað úr 150 í 200 á landinu. Yfirlit um þetta má m.a. sjá á heimasíðu Félags íslenska bifreiðaeigenda. Rafmagnsbílum á eftirmarkaði fjölgar jafnt og þétt. Sú samstaða sem hefur verið hjá fyrri ríkisstjórnum sem og þessari ríkisstjórn, að stuðla að þessari þróun með hagrænum hvötum endurspeglast í þessum ákvörðunum og hún endurspeglast í vilja okkar til þess að geta með meiri og tryggari hætti keyrt áfram íslenskt atvinnulíf á innlendum aðföngum.
Varðandi bann við ökutækjum sem knúin eru jarðefnaeldsneyti þá er rétt að fyrri ríkisstjórn hafði sett í aðgerðaáætlun sína í loftslagsmálum að óheimilt yrði að skrá bensín- og dísilbíla frá árinu 2030. Ekkert er fjallað um það í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar og það er ekki á verkefnalista hennar. Það er erfitt að spá fyrir um það nákvæmlega hver þróun verður varðandi hreinorku og þá sérstaklega hreinorku í þungaflutningum og á vinnuvélar. Þróunin er hröð en við þurfum að vera raunsæ. Íslenskt atvinnulíf krefst bæði þungavinnuvéla og þungaflutninga. Þar þarf einfaldlega að beita skynsemi, þannig að fremur en að beita boðum og bönnum hugnast mér og núverandi ríkisstjórn, sem og fyrri ríkisstjórnum, að beita frekar hagrænum hvötum.