157. löggjafarþing — 24. fundur,  22. okt. 2025.

vörugjald af ökutækjum.

204. mál
[17:15]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna og óska hæstv. ráðherra til hamingju með daginn og þakka fyrir svörin. Ég ætla nú ekki að ræða túlkanir á þeirri stefnu sem var í gangi, það er ekki tími til þess. En ég verð að segja, virðulegi forseti, að það er kaldhæðnislegt að nú þegar það er almenn sátt um að það mætti — og hefur nú ekki vantað yfirlýsingar frá núverandi ríkisstjórn um t.d. þann skatt sem var settur á, innviðagjaldið á skemmtiferðaskipin, að það hefði þurft að undirbyggja það betur. En menn sjá núna þessar breytingar, sem eru gerræðislegar. Það er algerlega með ólíkindum. Ég hef ekki tíma á einni mínútu til að fara yfir efni máls en það er með ólíkindum að sjá svona róttækar breytingar fyrir atvinnulífið og almenning með engum fyrirvara og ætla að ná einhverjum 7,6 milljörðum í auknar skatttekjur. Það er komin alger örvænting á markaðinn (Forseti hringir.) og þetta hefur gríðarlega alvarlegar afleiðingar á fyrirtækin og almenning í landinu. Ég trúi ekki öðru, virðulegi forseti, (Forseti hringir.) en að hæstv. ríkisstjórn dragi þetta til baka. Það sem mun gerast núna ef hæstv. ráðherra er að hugsa um það að hann ætli að draga úr útblæstri, (Forseti hringir.) virðulegi forseti, að það eru allir að fara hamstra bensín- og dísilbíla núna út af aðgerðum ríkisstjórnarinnar. Enda er þetta gerræðisleg aðgerð.