vörugjald af ökutækjum.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmönnum fyrir ágætt samtal. Varðandi ábendingar bæði hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar og hv. þm. Vilhjálms Árnasonar þá verð ég alltaf pínu hissa yfir skammtímaminni þeirra sem taka þátt í umræðunni hérna sem mér finnst stundum vera nokkuð ábótavant, af því að fyrri ríkisstjórn lagði til breytingar á vörugjöldum á bifreiðum bæði árið 2023 og 2024 og raunar hafði markað stefnu um að auka tekjur af umferð í 1,7% af landsframleiðslu sem er raunverulega það sem verið er að stefna að hér. Það er sem sagt stefna síðustu ríkisstjórnar, sem ég er ekki að gera neina athugasemd við. Ég hef ítrekað sagt að ég telji að það skipti litlu máli hvaðan góðar hugmyndir koma, þeim beri fyrst og fremst að fylgja eftir og að Íslendingar eigi skilið að það sé nokkur samfella í stjórn landsins. Menn gætu kannski undrast yfir þessum 1,7%, þótt þetta einhvern veginn skrýtin tala tekin upp úr hatti og það má vel vera að svo sé. En það er rétt að benda á að sambærilegt hlutfall upp úr aldamótum var 3%. Þetta hefur dregist verulega saman þannig að þegar menn tala hér um einhverja sögulega skattpíningu og eitthvað svona, þá hafa þeir alla vega ekki lesið söguna aftur til aldamóta og ekki aftur fyrir það heldur.
Ég tek hins vegar undir þær athugasemdir sem komu frá hv. þm. Tómasi Þór Þórðarsyni að það er vandamál hvað eftirspurn eftir rafmagnsbílum á bílaleigum hefur verið dræm. Þetta er ekki séríslenskt vandamál, norskar bílaleigur hafa kvartað yfir hinu sama en þar er rafbílavæðingin komin mun lengra en hér. Mér þykir erfitt að heyra af hans drægnikvíða sem hann lýsti yfir að hann hefði gengið í gegnum á ferðum sínum um landið en vil þó benda á að staðreyndirnar tala öðru máli varðandi útbreiðslu hleðslustöðva og enn þá betur horfir inn í framtíðina. (Forseti hringir.)
Nú vil ég minna hv. þm. Sigríði Á. Andersen á það að Viðreisn er ekki við stjórn í Reykjavík og ég get í sjálfu sér ekkert annað gert en að taka (Forseti hringir.) undir að auðvitað verður að vera möguleiki til að nýta hleðslustöðvar. Við erum um það sammála.