157. löggjafarþing — 25. fundur,  23. okt. 2025.

kvennaverkfall.

[10:31]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Forseti vill nota tækifærið nú, fimmtudaginn 23. október, og vekja athygli hv. þingmanna og hæstv. ráðherra á því að á morgun, 24. október, fögnum við því að það eru 50 ár frá kvennafrídeginum fyrsta. Ég vil nota tækifærið og hvetja stjórnmálamenn, hvar í flokki sem þeir standa, til að taka þátt í dagskrá þessa dags, hvort heldur er hér í höfuðborginni eða annars staðar. Hér gæti forseti haldið langa ræðu um kvenfrelsisbaráttuna en ætlar ekki að gera það. En ég vil óska okkur öllum til hamingju með árangur hennar síðastliðin 50 ár. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)