157. löggjafarþing — 25. fundur,  23. okt. 2025.

viðbrögð stjórnvalda við samdrætti í verðmætasköpun.

[10:41]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Það hefur ekki gengið vel með meginmarkmið þessarar ríkisstjórnar enn sem komið er. Þegar það rann upp fyrir hæstv. forsætisráðherra nú nýverið boðaði hæstv. ráðherra verðmætasköpunarhaust. Verðmætasköpunarhaustið var ekki hafið þegar það breyttist í vetur vorrar gremju, svo ég vísi í Shakespeare. Allt leggst á eitt: Enn hækkar verðbólgan. Það eru hópuppsagnir í sjávarútvegi, eins og spáð hafði verið fyrir um vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar. Komur skemmtiferðaskipa dragast gríðarlega saman með miklum áhrifum fyrir byggðir í kringum landið. Flugfélagið Play fór í þrot. Staða PCC á Bakka, sem hefur verið nefnd hér, er ekki batna, fólk er byrjað að flytja frá Húsavík. Vélfagi á Akureyri og Ólafsfirði er haldið í stöðugri óvissu af hálfu ráðherra þessarar ríkisstjórnar. Tveir þriðju hlutar Norðuráls eru núna stopp. Lánamarkaðurinn er í uppnámi. Og ekki einu sinni fjölmiðlar sleppa við þennan vetur ríkisstjórnarinnar, eins og sjá má á stöðu Sýnar sem virðist þurfa að draga saman seglin í beinu framhaldi af því að ríkisstjórnin ákvað að ráðstafa stuðningi við fjölmiðla til annarra og þóknanlegri miðla.

Þess vegna spyr ég hæstv. forsætisráðherra: Hvað stendur til að gera til að bregðast við þessum aðstæðum? Og nú er ég ekki að biðja um nýjan frasa, nýtt heiti á komandi mánuði. Ég er ekki að biðja um innihaldslaust tal. Ég er að biðja hæstv. forsætisráðherra að lýsa því fyrir okkur hvernig ríkisstjórnin hyggist bregðast við, hvernig hæstv. forsætisráðherra hyggist bregðast við. Hvað ætlar hæstv. forsætisráðherra að gera til að laga þetta ástand?