viðbrögð stjórnvalda við samdrætti í verðmætasköpun.
Frú forseti. Þetta svar hæstv. ráðherra var að mestu leyti keimlíkt svari hæstv. atvinnuvegaráðherra áðan: Það er margt í mörgu og við erum að skoða þetta. Ég ætla ekki að gera aðra tilraun til að biðja hæstv. forsætisráðherra að lýsa aðgerðum sem ég hefði talið að ætti að kynna í dag og helst miklu fyrr til að bregðast við þróuninni í íslensku efnahagslífi. Ég ætla hins vegar að spyrja hæstv. ráðherra út í forgangsröðun. Hæstv. ráðherra segist vilja kynna sér hvernig liggi í málinu til að geta þá brugðist við því en hvernig verður forgangsröðunin? Verður forgangsröðunin á íslenskt efnahagslíf, atvinnulíf og verðbólgu, það sem boðað var fyrir kosningar, eða verður aðalforgangsatriði þessarar ríkisstjórnar áfram að koma Íslandi inn í Evrópusambandið, eins og virðist hafa verið megináherslan og birtist með ýmsum hætti síðustu misseri? Hæstv. forsætisráðherra er nýbúinn að heimsækja fólk í Sandgerði og hefur kannski fengið að heyra af því hvað fólk þar a.m.k. vill sjá. Var einhver sem lagði áherslu á að ríkisstjórnin einbeitti sér að því að koma Íslandi í Evrópusambandið eða eru það aðrir hlutir sem almenningur á Íslandi hefur mestan áhuga á að ríkisstjórnin sinni?