157. löggjafarþing — 25. fundur,  23. okt. 2025.

endurmat á forsendum hagstjórnar stjórnvalda.

[10:51]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og vil ítreka það sem ég sagði áðan: Þetta er grafalvarleg staða hjá Norðuráli. Fólk er enn þá að meta stöðuna. Fólk sem starfar hjá félaginu er enn þá að meta stöðuna og fyrstu viðbrögð okkar í ríkisstjórninni, og held ég alls þingheims, eru auðvitað fyrst og fremst að hugur okkar er hjá starfsfólki Norðuráls í þessari óvissu sem nú þegar er komin upp. Við höfum auðvitað séð ákveðnar áskoranir. Við sáum fall flugfélagsins Play sem var í rekstrarvanda og tók ákvörðun um að láta taka félagið til gjaldþrotaskipta. Við höfum rætt hér um Bakka og aðkomu stjórnvalda þar. Ég ætla bara að leyfa mér að fullyrða að það hafi verið mikil ánægja, sérstaklega í sveitarstjórnum, með aðkomu ríkisins að þeim verkefnum sem er mögulega hægt að setja í undirbúning núna. Þetta er ekki einfalt mál og það er ekki sjálfgefið að ríkið grípi inn í stöðu t.d. einkafyrirtækis eins og í stöðu Bakka en hefur samt verið í öflugri hagsmunagæslu og er að reyna að gæta svæðisins í heild sinni og liðka fyrir ákveðnum ferlum.

Eins nefni ég orkumálin og fleira sem hefur því miður verið í lamasessi í allt of langan tíma og við erum að gera skurk í núna og það mun taka einhvern tíma. Vissulega eru blikur á lofti í efnahagsmálum út af veikri stöðu útflutningsgreina sem hér hefur verið nefnd. Það gerir enginn lítið úr því. Ég vil hins vegar nefna að nýjustu atvinnuleysistölur, í kringum 3,5%, líta allt í lagi út í samhengi við stöðu mála. Þenslan hefur verið á niðurleið.

Varðandi endurmat á stöðu efnahagsforsendna er það alltaf svo að slíkt endurmat kemur í tengslum við 2. umræðu fjárlaga. Slíkt endurmat mun núna þurfa að fara fram og ég hygg að fjármála- og efnahagsráðuneytið vinni núna hörðum höndum í að reyna að taka inn þær upplýsingar sem þó eru til staðar varðandi þessa óvissu sem er uppi í hagkerfinu og við munum þurfa að bregðast við því þegar við höfum aðeins meiri vissu fyrir framan okkur.