endurskoðun innviðagjalds á farþega skemmtiferðaskipa.
Frú forseti. Aftur þakka ég fyrirspurnina. Mér var nú bent á mismæli hér áðan. Ég ætlaði mér að segja og taldi mig hafa sagt að ríkisstjórnin lækkaði gjaldið um 20% frá því sem fyrri ríkisstjórn ákvað. Það er ekki ekkert, svo það sé haft á hreinu þegar um er að ræða stórar fjárhæðir. Ég lýsti því líka yfir að mér þætti jákvætt ef í meðförum þingsins yrðu skoðaðir möguleikarnir á því að lækka það enn frekar. Síðan þurfum við bara að sjá hvað setur. Stærsti gallinn á þessari framkvæmd í tíð síðustu ríkisstjórnar að mínu mati var skortur á fyrirsjáanleika og það er sá skortur sem aðilar í ferðaþjónustu hafa kvartað mest undan. Þess vegna er þetta inni, þessi lækkun til eins árs í senn, það eykur fyrirsjáanleikann. Síðan er þetta bara eitthvað sem þarf að skoða í samhengi við stærri atriði. Það þarf líka að gæta að því að skemmtiferðaskip eru í samkeppni við hótel og aðra gististaði á landinu þannig að niðurfelling á þessu gjaldi tel ég að myndi skekkja samkeppnisstöðu. En sennilega þarf einmitt að huga að því að gæta jafnræðis og (Forseti hringir.) tryggja að allar þessar greinar ferðaþjónustunnar, þ.e. gistingin, geti blómstrað.