jöfnun kostnaðar vegna flugvélaeldsneytis.
Frú forseti. Það er mikilvægt mál að fá fram frekari upplýsingar um þetta. Það sem er öryggisþátturinn, og er raunverulega risastórt þjóðaröryggismál, er að allt flugvélaeldsneyti á Íslandi er geymt á einum stað í Helguvík. Þannig hefur það verið um árabil. Framkvæmdastjóri NATO kom inn í þá framkvæmd á sínum tíma. Það er mikilvægt að geyma flugvélaeldsneyti á fleiri stöðum á Íslandi. Vandamálið er hins vegar að það er mikið og erfitt verk að geyma flugvélaeldsneyti, það þarf að hræra í því vikulega. En það er mikilvægt að við fáum einhverja lausn í þessi mál vegna þess að í einu vetfangi er hægt að taka út allt flugvélaeldsneyti á Íslandi ef eitthvað slæmt kemur upp á, á einum tímapunkti. Síðan getum við rætt hversu mikið eldsneyti er til í landinu hverju sinni. Þetta er eitt af því sem snýr að þjóðaröryggismál, þ.e. birgðahaldið í landinu; hversu mikið eldsneyti er til á hverjum tímapunkti. Á undanförnum árum hefur það oft og tíðum verið mjög takmarkað, oft aðeins birgðir sem endast í örfáar vikur.