Menntasjóður námsmanna.
Virðulegi forseti. Ég ætlaði aðeins að fylgja eftir þessari breytingartillögu sem er að berast hér í 3. umræðu. Hún er í rauninni einföld og tæknilegs eðlis og kom fram eftir yfirlestur á frumvarpinu og samskipti milli ráðuneytis og þingfundaskrifstofu. Í tillögunni er lagt til að á eftir orðunum „Vextir endurlána“ í 2. málslið 5. gr. komi: ríkissjóðs. Greinargerðin er einföld líka, þannig að það liggi bara fyrir:
„Lögð er til einföld breyting til að gæta samræmis á milli 4. og 5. gr. frumvarpsins þess efnis að vísað verði til vaxta endurlána ríkissjóðs í báðum ákvæðum.“