157. löggjafarþing — 25. fundur,  23. okt. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

47. mál
[11:24]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Ég vildi stuttlega gera grein fyrir því að frumvarpið snýst um, eins og við sjáum það í þingflokki Miðflokksins, að hluta til að koma út meiri styrk styrksins vegna. Það er margt gert í þessu til þess að auka útgreiðsluna, ákveðnir þættir, ekkert stórir, tilraun með 20% styrk eftir hverja önn í stað 30%. Þetta er tilraun sem er svo sem ekkert óeðlileg í sjálfu sér. En í þessu samhengi er líka verið að tala um það í þessu frumvarpi af hálfu hagsmunaaðila að styrkurinn geti jafnvel farið upp í 40%, það er reifað þarna, alls ekki að það sé endilega ásetningur stjórnvalda. Í því sambandi tel ég að við þurfum að skoða vel að það sé heilbrigt jafnvægi á milli styrks og stuðnings og síðan eigin áhættu og ábyrgðar námsmanna. Það er síst þannig að við séum í sjálfu sér mótfallin þessu en við viljum að þetta sé tekið til heildarendurskoðunar og vísum því bara áfram þangað og sitjum hjá.