viðhlítandi þjónusta vegna vímuefnavanda.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir hennar svar. Já, þessi ríkisstjórn, og flokkarnir sem að henni standa, hefur ekki verið lengi við völd og þegar hún tók við völdum þá voru aðstæður í þessum málum alls ekki góðar. Það er kannski óhætt að segja að það hefur ekki mikið verið gert í þessum málaflokki síðustu ár þannig lagað séð, að það hafi skilað sér í úrræðum, virkum og góðum úrræðum, þó svo að það hafi kannski verið unnið að hugmyndafræðinni af fullum krafti og stefnumótun. Ég vil þakka fyrrverandi barnamálaráðherra, Ásmundi Einari Daðasyni, fyrir það sem hann gerði og hann reyndi að gera margt, en hann kom því miður ekki öllu í verk og nú er verið að vinna í því. Ég held að við verðum að vera bjartsýn og við verðum aðeins að gefa þessu smátíma. En ég skil vel að hver dagur skiptir máli og ég skil vel foreldrana sem núna leita annað og eru á leið með börn sín til Suður-Afríku. Ég sem foreldri, væri ég í þessum sporum, myndi gera nákvæmlega það sama. Ég myndi reyna að gera allt og ekki svífast neins, ef ég má orða það þannig, til að fá hjálp fyrir barnið mitt þannig að það er bara vel skiljanlegt. En núna vil ég bara trúa því og treysta að hæstv. barnamálaráðherra sé með þetta í algjörum forgangi og að við munum sjá fljótlega á næsta ári bætur á þessum málum og þangað til verðum við auðvitað að sýna skilning og stuðning eins og við getum til þeirra foreldra og barna sem eiga virkilega um sárt að binda vegna þessara mála.