157. löggjafarþing — 25. fundur,  23. okt. 2025.

viðhlítandi þjónusta vegna vímuefnavanda.

54. mál
[13:05]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni fyrir sína ræðu, sem ég ætla að veita hér andsvar við, en vil líka þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir að koma með þetta mál til umræðu. Það er mikil þörf á að ræða þetta mál á þinginu í dag eins og oft áður en þörfin er mikil í dag.

Það sem mig langaði að byrja á að koma inn á er að ég tek undir með hv. þingmanni, ég held að við séum í megindráttum sammála um þetta allt saman. Við viljum gera þetta þverpólitískt, við viljum ná árangri og það strax. Við vitum um samfélagslega kostnaðinn og kostnaðinn varðandi lífsgæði þeirra sem eiga við fíknivanda að etja og fjölskyldur þeirra og samfélagið allt. Þetta verður aldrei metið að neinu verði, það er bara ekki hægt, þetta er þannig. Fyrst við erum svona sammála og erum sammála um að kostnaðurinn við að gera ekki neitt sé meiri en kostnaðurinn við að bregðast við þá er spurningin: Af hverju er þetta svona? Hvernig getum við stigið næstu skref? Við þurfum að reyna að komast að kjarnanum í því. Ég get tekið undir með hv. þingmanni að vísindin þurfa að vera leiðandi en óhefðbundnu úrræðin verða líka að vera og svo er misjafnt hvað hentar fólki og misjafnt hvað við ráðum við að bjóða upp og annað slíkt. Grunnspurningin mín er: Á það að skipta máli hver veitir þjónustuna, hvort sem hún er óhefðbundin eða vísindaleg? Er ekki bara eðlilegt að þeir sem hafa eitthvað fram að færa í þessu og geta haft lausnir í boði, hvort sem það er heilbrigðiskerfið eða félagskerfi hins opinbera, sveitarfélaganna, ríkisins eða einkaaðilar eins og félagasamtök eða jafnvel fyrirtæki eða einstaklingar? Skiptir einhverju máli hver veitir þjónustuna? Er ekki aðalmálið að þjónustan sé veitt? Getum við ekki verið sammála um það?