viðhlítandi þjónusta vegna vímuefnavanda.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir. Það er ekkert langt síðan að það kom út skýrsla sem dró fram þá skoðun og þá staðreynd að þegar kemur að þessum málaflokki í gegnum tíðina þá hafa það einmitt verið félagasamtök og einkaaðilar, ekki ríkið heldur aðrir en ríkið, sem hafa stofnað úrræði og farið af stað með eitthvert starf til að veita þjónustu vegna þess að heilbrigðiskerfið og félagslega kerfið okkar var ekki að gera það. Þetta er auðvitað svolítið dapurlegt að þess þurfi, þ.e. að opinbera kerfið sé ekki það sterkt að það grípi fólk, en í senn líka fallegt að því leytinu til að þarna kemur auðvitað bara náungakærleikur og umhyggja, oft aðstandenda, inn í málið. SÁÁ sprettur upp úr þessu, Krýsuvík sprettur upp úr þessu, Hlaðgerðarkot gerir það líka. Ég veit að það er lagt mikið upp úr vísindalegri þekkingu og nálgun hjá SÁÁ og það er auðvitað frábært. En svo eru kannski einhverjir aðrir aðilar sem fara aðra leið. Mér finnst að við eigum bara að horfa á það að ef úrræðin virka, ef þau gera gagn þá skiptir í sjálfu sér rekstrarmódelið eða hvort þetta eru félagasamtök, heilbrigðiskerfið, eitthvert úrræði á vegum sveitarfélaga eða jafnvel einhvers konar aðstoð frá fyrirtækjum, ekki máli. Við eigum bara að faðma það og reyna að rækta það.
Ég kom ekkert inn á það áðan í ræðunni, ég gleymdi því, en það var svo mikilvægur punktur sem kom fram hjá hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur, þ.e. að þegar við erum með þessa löngu biðlista þá erum við að setja meðferðaraðilana í þá stöðu að þeir þurfa að fara að forgangsraða hverjir komast inn. Það er gert þannig sums staðar að þeir sem eru að koma í fyrsta sinn hafa forgang. Það er vegna þess að litið er svo á að þá séu kannski mestar líkurnar á að náist bati. En það gerir það auðvitað að verkum að fólk sem er í mikilli neyð (Forseti hringir.) og hefur þurft að leita sér aðstoðar aftur og aftur, jafnvel í tugi skipta, verður utangarðs. (Forseti hringir.) En bara svona til að ramma inn svarið: Þessi sjúkdómur hefur sýnt okkur það að einmitt félagasamtök og einkaaðilar hafa leikið stórt hlutverk vegna þess að ríkið hefur ekki gripið þetta og við eigum auðvitað ekki að ýta því út af borðinu.