157. löggjafarþing — 25. fundur,  23. okt. 2025.

viðhlítandi þjónusta vegna vímuefnavanda.

54. mál
[13:12]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir andsvarið. Hér er auðvitað hreyft mjög mikilvægum punkti, þ.e. það er oft verið að bjarga rekstri félagasamtaka fyrir horn í fjárlögum hvers árs frá ári til árs. Maður heyrir hjá þeim sem eru að reka þessi úrræði að það fer alveg ótrúlega mikil orka í þetta í staðinn fyrir að vera að eyða orkunni í meðferðina sem slíka. Þetta á við um þau úrræði sem oftast eru nefnd í þessu máli hér, við erum líka að eiga við þetta sama í þeirri þungu umræðu sem hefur verið um Ljósið að undanförnu. Við þurfum auðvitað að fá betri og skýrari langtímaramma utan um þessi úrræði þó að þau séu ekki rekin af ríkinu. En þau eru auðvitað fjármögnuð alltaf að talsverðu leyti af ríkinu og svo er auðvitað mikið um sjálfsaflafé líka. Mér finnst það reyndar líka gott. Mér finnst oft gott að þessi samtök reyni að vera dugleg í að afla sjálf fjármuna. Ég veit að það fer orka og kraftur í það en það er hins vegar stundum þess eðlis að það þjappar fólki saman um úrræðið. Það er núna verið að móta stefnu og fara yfir þessi mál og það hefur svo sem oft verið að stofna hópa og annað til að gera þetta. En eitt af því sem þessir hópar gætu tekið utan um er að varpa ljósi á það hvernig best er að standa að einhverri langtímafjármögnun þannig að þetta fari ekki alltaf frá ári til árs í gegnum fjárlaganefnd eins og hv. þingmaður nefnir.

Mig langaði líka að nefna að það var vísað til skoðanaskipta fyrr í vikunni um að það væri ekkert mál að rigga bara upp einhverri deild eins og var gert í Covid. Auðvitað ætla ég ekkert að slá það út af borðinu eða gagnrýna það en þessi vandi er samt svolítið flóknari. Hann er oft þess eðlis að það þarf mikið af sérfræðingum og það þarf oft svolítið langan tíma, lengri tíma heldur en í hinu, til að meðhöndla fólk og gera það jafnvel móttækilegt fyrir meðferð. Inn í þetta koma afeitrunarsjónarmið eins og á Vogi, þ.e. að koma fólki í jafnvægi áður en það getur verið móttækilegt fyrir meðferðinni (Forseti hringir.) þannig að ég held að það sé ekki algerlega samanburðarhæft. En ég skil svo sannarlega punktinn og geri ekki nokkra einustu athugasemd við að menn hreyfi við því að opna á þann möguleika.