viðhlítandi þjónusta vegna vímuefnavanda.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka aftur fyrir að þessi mikilvæga umræða sé hér á dagskrá. Það skiptir miklu máli að hlutirnir hreyfist hratt og örugglega og það er á ábyrgð okkar allra, 63 kjörinna fulltrúa, að tryggja að svo verði. Hér er tillaga sem á að setja hálfgerða sérsveit af stað um hvernig við getum komist áfram í þessum vanda og fundið lausnir. Því vildi ég koma hér aðeins upp og ræða mínar hugmyndir að því og almennt hjá okkur í Sjálfstæðisflokknum hvernig við sjáum að hægt sé að gera þetta hratt og örugglega af því að við höfum engan tíma til að bíða. Þetta verður að gerast strax. Ég átta mig alveg á því að sum úrræði taka lengri tíma og eru sérhæfðari en önnur og það er það sem þarf að vera grunnurinn hér, það er fjölbreytileikinn í bæði úrræðunum og rekstrarformunum sem skiptir öllu máli í þessu. Það er það sem skiptir öllu máli. Það virðist eins og hér séu allir sammála um að það þurfi að taka á vandanum og hann sé mikill og annað slíkt en svo bara gerist ekki neitt. Það eina sem gerist er það að einkaframtakið býr til úrræði út af neyð. Allt samfélagið skynjar neyðina. Þetta er nálægt okkur öllum. Við eigum öll vini og ættingja sem glíma við þennan vanda. Það þekkja allir vandamálin. Það sjá allar stéttir samfélagsins mikilvægi þessa. Það er út af því sem ábyrg samtök eins og þjóðkirkjan og KFUM og K, eins og SÁÁ, eins og Samhjálp, eins og Hugarafl og Geðhjálp og fleiri, svona gæti ég talið endalaust, taka sig til og búa til úrræði, fara svo af stað og fá sjálfsaflafé til að reka úrræðin samfélagsins vegna. Þeirra stærsta verkefni og þeirra erfiðasta verkefni er samtal við ríkisvaldið, að fá fjármunina þaðan, af því að ríkisvaldið, kerfið, heldur að það verði að sjá um þetta sjálft, að það sé eina sem getur veitt úrræðin. Við erum búin að búa til stofnun sem heitir Sjúkratryggingar Íslands sem gæti séð um innkaup og er hönnuð til að sjá um innkaup af einkaaðilum en einhvern veginn má það ekki gerast.
Svo eru furðulegar ákvarðanir teknar, þeim úrræðum sem þó voru til og voru að skila árangri en virtust vera eitthvert vandamál fyrir kerfið sjálft, ekki fyrir skjólstæðingana heldur fyrir kerfið, var bara lokað, eins og Háholti í Skagafirði. Ég bjó sjálfur í Skagafirði á meðan Háholt var opið, stóran part af þeim tíma. Ég tók þátt í því samfélagi sem hjálpaði fjölda barna að komast á réttan kjöl aftur. Af hverju tókst það? Var það út af gagnreyndum úrræðum? Var það út af fullt af sérhæfðu fólki í 101 Reykjavík? Nei, það var út af því sem hv. þm. Sigmar Guðmundsson kom hérna inn á áðan þegar hann var að tala um úrræði erlendis, það var út af fjarlægðinni, nýju umhverfi, heilbrigðu umhverfi. Það var stóra ástæðan. Fólk komst í ró, komst í nýtt umhverfi og fékk að takast á við sveitastörfin. En þá var það aðalvandi Barnaverndarstofu, eða hvað stofnunin hét þá, að þetta var svo langt í burtu.
Ég er ekki að segja að Háholt hafi leyst allan vanda eða vanda allra barna og þessi rök hafi ekki átt við hjá einhverjum. En það er bara það mikill fjöldi sem er að bíða og þetta hefur gagnast mjög stórum parti af þeim fjölda. Þannig að það er lausn, Háholt er enn þá til og það er enn þá opið og þekkingin í Skagafirði er enn þá til. Við getum opnað svona strax. Þetta er eitt. En ég tel að stóra lausnin, ef við ætlum að ná árangri í þessu, sé það að allir þeir sem hafa góðar hugmyndir sem við getum flokkað í fyrsta stigs þjónustu, annars stigs þjónustu og þriðja stigs þjónustu og greitt samkvæmt því geti hleypt þessu af stað og þá getum við sparað þvílíka peninga. Við erum núna að borga með bæði mannslífum og miklum fjármunum með því að bíða eftir að ríkið setji af stað hin ýmsu úrræði, sum þeirra var farið yfir hérna áðan, á meðan við gætum fengið þau 10–20 sinnum ódýrari erlendis og gefið þann valmöguleika. Við gætum fengið það margfalt ódýrara með því að styrkja þau félagasamtök sem eru að standa sig vel í þessu dag enn frekar. Eins og ég kom aðeins inn á í andsvarinu áðan þá getur þetta ekki staðið þannig að þeir sem eru að gera góðar lausnir og eru að koma með gott þurfi alltaf að eyða öllum sínum dýrmæta tíma í að ganga á milli þingmanna til að tryggja fjármagn frá fjárlaganefnd Alþingis af því að framkvæmdarvaldið vill ekki hleypa þessu inn í gegn, vill ekki viðurkenna þetta af því að þetta er ekki gagnreynt, þetta er ekki að þeirra frumkvæði og allt það. Það getur ekki gengið.
Svo má ekki gleyma einu í þessu. Það er líka rót vandans. Mikið af þeim úrræðum sem er verið að bjóða er snemmtæk íhlutun og eru lítil námskeið eins og kvíðanámskeið og framkomunámskeið og annað slíkt, svona úrræði sem við getum tekið inn áður en vandinn verður stærri. Það sparar svo í meðferðarúrræðum og afbrotum og sjúkdómum síðar. Við erum að tala alveg frá mennta- og barnamálaráðuneytinu upp í félagsmálaráðuneyti og upp í heilbrigðisráðuneyti. Þetta er allt sem er undir. Þetta snýst um það að þeir sem hafa samfélagslega góðar lausnir til að bjóða fólki í vanda aðstoð við sínum vanda og úrræði án þess að spyrja hvort þú sért einkaaðili eða opinber aðili og hvort þú sért hefðbundið eða óhefðbundið úrræði og hverra þú ert — þessi þjónusta á að vera í boði. Það er ódýrara fyrir alla, það er betra fyrir alla og þannig munu lífskjörin á Íslandi batna fyrir alla. Ég treysti því að við tökum þetta föstum tökum núna og förum beint í það sem virkar.