viðhlítandi þjónusta vegna vímuefnavanda.
Frú forseti. Hv. þm. Vilhjálmur Árnason hreyfði við svolítið áhugaverðum hlut í sinni ágætu ræðu sem ég myndi aðeins vilja koma inn á. Það var verið að nefna Háholt í Skagafirði og hér erum við svolítið að tala um yngra fólkið okkar. Við reiðum okkur auðvitað öll alltaf á upplýsingar frá sérfræðingum og það eru náttúrlega ýmist sérfræðingar sem vinna inni í kerfinu eða standa utan þess sem hafa skoðanir á þessu. Ég hef stundum skilið umræðuna sem svo að t.d. Háholt henti ekki vegna þess að það er erfitt að fá fagfólk, bara út af því hvar á landinu Háholt er. Við erum auðvitað með úrræði fyrir norðan þar sem er auðvitað stærri þéttbýliskjarni í kring. Við erum líka að tala um Gunnarsholt sem er nær höfuðborgarsvæðinu og það er verið að reyna að koma því fyrr í gagnið eins og kom fram hjá hæstv. barnamálaráðherra núna í vikunni. Ég á alltaf svolítið erfitt með að staðsetja mig í þessari umræðu vegna þess að á sama tíma og maður skilur að ef það vantar fagfólk er erfitt að eiga við það, en svo erum við líka í þeirri stöðu að þegar við erum með úrræði á höfuðborgarsvæðinu þá eru t.d. foreldrar og sumir sérfræðingar að kvarta undan því að það sé svo auðvelt að fara úr því úrræði, strjúka úr því og þá ertu kominn beint inn í neysluheiminn hérna á höfuðborgarsvæðinu. Þetta togast alltaf svo mikið á, hvort úrræðin eigi að vera nálægt þéttbýli eða í burtu. Sumir foreldrar vilja svo sannarlega fara með börnin sín í burtu frá höfuðborg eða fjölmennari stöðum því að þá er lengra í neysluna fyrir krakkana.
Það er kannski engin sérstök spurning, (Forseti hringir.) ég ætlaði bara að ramma þetta inn og fá þá kannski fram hjá hv. þingmanni hvort hann hafi einhverja sérstaka skoðun á því hvort sjónarmiðið eigi að vega þyngra, þ.e. fjarlægðin og þá einangrun eða nálægðin við fjölmennari staði.
(Forseti (KÁB): Forseti vill minna hv. þingmenn á ræðutímann.)