157. löggjafarþing — 25. fundur,  23. okt. 2025.

viðhlítandi þjónusta vegna vímuefnavanda.

54. mál
[13:25]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni fyrir að koma með þennan góða vinkil inn í þessa umræðu sem er gríðarlega mikilvæg. Ég hef miklar skoðanir á þessu, bæði sem þingmaður sem er búinn að vera í velferðarnefnd og fjárlaganefnd og pæla mikið í þessum málum og einnig sem lögreglumaður og í Skagafirði, þá ófaglærður, þegar ég starfaði í Skagafirði. Ég heyri þetta oft. Forstjóri Rarik sagði þetta einu sinni: Það er ekki hægt að hafa skrifstofur Rarik úti á landi af því að það er ekkert faglegt fólk úti á landi. Nú er ekki hægt að hafa meðferðarúrræði í Skagafirði af því að það eru svo fáir fagmenn þar. Ég bíð bara eftir að þeir sem hugsa svona loki lögreglustöðvum úti á landi. Það er ekki hægt að hafa lögreglu úti á landi af því að það eru ekki alls staðar faglærðir lögreglumenn. Þetta gengur ekki upp. Þetta kerfi sem talar svona um fagfólkið — fagfólk er mikilvægt, en ég spyr: Hvað er fagfólk? Stuðlar komu hér til umræðu. Ég sá árangurinn á Háholti bara sjálfur sem formaður nemendafélagsins á staðnum, sem lögreglumaður á staðnum og annað slíkt. Þar var fagfólk. Þau voru kannski ekki menntaðir sálfræðingar eða menntaðir geðlæknar en voru fagfólk af því að þau höfðu t.d. tekist á við eigin fíknisjúkdóm sjálf. Þau voru fagfólk í mannlegum samskiptum. Þau voru fagfólk í því að koma af kurteisi fram við fólk, bera virðingu fyrir því og það var það sem valdefldi þetta unga fólk og kom því til manns, í því umhverfi sem það var. Stuðlar eru með fullt af fagfólki sem er að gera sitt besta. Ég veit ekki hvaða lög og reglur það eru sem þau þurfa að fara eftir sem kannski gerir þeim erfiðara fyrir að sinna sínu starfi og svo líka, eins og hv. þingmaður kom inn á, er það umhverfið. Það er stutt í fíkniefnin. Við lögreglumennirnir á höfuðborgarsvæðinu, þegar ég var í lögreglunni hér, vorum sammála um það að ef börnin okkar lentu í vanda færu þau aldrei inn á Stuðla. Þá fyrst myndu (Forseti hringir.) þau kynnast glæpagenginu og lenda í veseni. Háholt allan daginn í staðinn fyrir Stuðla (Forseti hringir.) og fjarlægðina í staðinn fyrir návígið, hvort sem það er við fjölmennið eða sérfræðingana.