157. löggjafarþing — 25. fundur,  23. okt. 2025.

viðhlítandi þjónusta vegna vímuefnavanda.

54. mál
[13:27]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Já, við lendum náttúrlega alltaf á sama punktinum. Úrræðin þurfa að vera fjölbreytt. Það getur þýtt einmitt að eitthvert úrræði sambærilegt Háholti eða á svipuðum slóðum eða annað geti alveg unnið með öðrum úrræðum þannig að foreldrar og aðstandendur og börnin eigi þá eitthvert val eftir því hvað hentar. Það er auðvitað það sem er undir í þessari tillögu, ákveðin greining á því hver sé viðhlítandi þjónusta fyrir mismunandi hópa. Þetta er ekki eins fyrir alla og það er ekki hægt að klæðskerasauma einhver örfá stór úrræði sem endilega henta öllum. Þetta með uppskiptingu hópa er alveg gríðarlega mikilvægt, ekki bara inni á Stuðlum, þetta hefur líka verið umtalsefni á stærri meðferðarstofnunum okkar. Það er allt galleríið þar undir; ungt fólk, eldra fólk, fólk sem hefur verið í langvarandi sprautuneyslu, þeir sem eru bara að drekka áfengi. Þetta er svo flókinn sjúkdómur og hann er svo marglaga og hann er ekkert eins hjá okkur öllum þannig að það sem er undir í málinu sem við erum að ræða hérna leiðir okkur inn í það sem hv. þingmaður er að nefna. Þess vegna var ég að nefna þetta með útlönd. Við getum ekki lokað augunum fyrir því að þó að við séum mögulega komin á þann stað, Íslendingar, að við séum með mjög góð úrræði á völdum stöðum á landinu þá er það svolítið þannig að stundum vill fólk fara jafnvel enn lengra og vísa ég þá aftur í þessa umræðu um börnin og foreldrana sem eru að fara til Suður-Afríku en líka um meðferðarúrræði sem var í Svíþjóð þar sem var nú kannski meira fullorðið fólk að fara en þó fór talsvert af ungu fólki líka þangað. Þetta leiðir okkur alltaf að því að úrræðin þurfa að vera fjölbreytt og mörg.

Ég er í sjálfu sér ekki með neina sérstaka spurningu nema kannski þó þetta: (Forseti hringir.) Vel var látið af úrræðinu í Háholti, fagfólk í mannlegum samskiptum, fagfólk í sjúkdómum út frá eigin reynslu, hefur hv. þingmaður einhverja innsýn í það hvernig þetta sneri að aðstandendum?