157. löggjafarþing — 25. fundur,  23. okt. 2025.

viðhlítandi þjónusta vegna vímuefnavanda.

54. mál
[13:30]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa góðu og mikilvægu umræðu milli okkar. Ég vil kannski byrja á að segja það að ég hef fulla trú á starfsfólkinu á Stuðlum, að þau séu að gera sitt besta og séu miklir sérfræðingar í sínu fagi. Mögulega myndu Stuðlar, nákvæmlega eins og það úrræði er í dag, ganga miklu betur á stöðum eins og í Skagafirði af því að það væri í öðru umhverfi og minni nálægð. Mögulega gæti Stuðlum gengið miklu betur að sinna starfi sínu ef við breytum einhverju varðandi löggjöfina, hvað þeim er heimilt að gera og annað slíkt. Það var eitt af því sem var í umræðunni um úrræðin í Suður-Afríku, það virtist vera að þeir gætu haft meiri aga þar. Ég ætla ekki að segja til um það og hef ekki þekkingu á því, ég er bara að velta því upp. Ég tek undir það að við eigum að bjóða fjölbreytt úrræði, hvort sem þau eru erlendis eða í sitt hvorum landshluta eða veitt af mismunandi aðilum. Ég vildi líka koma inn á það að staðir eins og Háholt, þó að það séu kannski ekki margir sérfræðingar — það eru alveg til sálfræðingar í Skagafirði og geðlæknar og fleiri en einn og fleiri en tveir og allt það og fólk á svona stöðum getur líka unnið undir handleiðslu og eftirliti eins og við þekkjum úr öllum geirum, meira að segja innan heilbrigðisstéttanna. Ég vildi hafa það alveg á hreinu. Ég held að við eigum bara að sameinast um að opna öll þau úrræði sem við getum sem fyrst, það sé aðalatriðið, hvort sem það er Háholt eða önnur og burt séð frá því hver rekur þau.

Varðandi spurningu hv. þingmanns um upplifun aðstandendanna þá hef ég ekki talað beint við aðstandendurna en ég upplifði það oft þannig að skjólstæðingar Háholts ættu oft á tíðum ekki marga aðstandendur. Oftar en ekki ílengdust þau í Skagafirði, fluttu bara alfarið til Skagafjarðar þegar meðferðinni var lokið. En þessi góði árangur sem börnin náðu — ég gef mér að aðstandendum hafi verið alveg sama þó að þeir hefðu þurft að leggja á sig smá fjarlægð ef börnin þeirra fengu bata.