157. löggjafarþing — 25. fundur,  23. okt. 2025.

viðhlítandi þjónusta vegna vímuefnavanda.

54. mál
[13:42]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég ætla bara að játa það á mig hérna alveg í upphafi að ég er svolítið að misnota andsvarsréttinn. Ég er ekkert að ætlast til þess að hv. þingmaður komi með eitthvert sérstakt mótspil við því sem ég er hér að segja. Mig langaði samt bara að stinga inn í umræðuna af því að það er svo margt sem maður gleymir að tiltaka í ræðunum, t.d. þetta sem er verið að nefna hérna með dauðsföllin. Það er til einhver greining á því hvað það eru mörg lyfjatengd andlát og það er verið að reyna að áætla að þetta séu meira en 100 dauðsföll á ári hverju. Það er kannski auðveldara að rekja það með lyfjatengdu andlátin. Hvað með öll sjálfsvígin? Hversu mörg sjálfsvíg eru vegna þess að viðkomandi er búinn að vera að kljást við fíknisjúkdóm allt sitt líf? Það er ekki skráð þannig í neinni skrá. Hvað með öll slysin sem verða út af þessu? Þau eru alltaf einhver. Það eru alltaf einhverjir að deyja af slysförum sem rekja má til fíknar. Það eru auðvitað ekki skráð þannig. Þegar fólk deyr úr öðrum sjúkdómum sem rekja má til þess að það hefur aldrei sinnt sér og farið illa með sig út af fíknisjúkdómi er það auðvitað ekki skráð sem dauðsfall út af fíknisjúkdómi. Tölfræðin er svo ófullkomin. Hún er svo bjöguð af því að skráningin á þessu nær auðvitað ekki yfir allan vandann. Ég ætlaði því bara að taka undir það sem hv. þingmaður var að nefna hérna með það.

Svo var komið aðeins inn á skýrslu þar sem einmitt var verið að tala um það að þetta hefði svolítið verið einhvern veginn á sjálfstýringu og það væri ekkert eitt ráðuneyti sem hefði tekið að sér forystu í málaflokknum, þá var það þannig að fyrrverandi heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórsson, þegar hann fékk þessa niðurstöðu í hendurnar, tók hann mjög utan um það og sagði: Heyrðu, hér þurfum við að gera betur. Hér þarf auðvitað heilbrigðisráðuneytið að veita ákveðna forystu en eins og hefur komið fram í ræðum í dag, (Forseti hringir.) þá er þetta samt sem áður þannig að þetta teygir sig yfir í aðra málaflokka, örugglega flesta, menntamál, félagsmál og mun víðar.

Ég er ekkert að ætlast til þess að hv. þingmaður svari frekar en hann vilji en ég vildi halda þessu til haga í umræðunni.