157. löggjafarþing — 25. fundur,  23. okt. 2025.

stuðningur við jarðakaup frumkvöðla á landsbyggðinni.

200. mál
[13:53]
Horfa

Flm. (Þórarinn Ingi Pétursson) (F):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um stuðning við jarðakaup frumkvöðla á landsbyggðinni. Flutningsmenn ásamt þeim sem hér stendur eru hv. þingmenn Sigurður Ingi Jóhannsson, Ingibjörg Isaksen, Halla Hrund Logadóttir og Stefán Vagn Stefánsson. Tilefni þess að þessi þingsályktunartillaga er nú borin hér fram öðru sinni er sú staða sem ég reikna nú með að blasi við okkur öllum, þ.e. hvernig við getum reynt að koma því þannig við að aðstoða — í þessu tilliti köllum við það frumkvöðla, en það er ansi vítt hugtak ef við tölum um frumkvöðla. En við getum horft til ungra bænda, fólks sem hefur áhuga á því að nýta landið á ýmsan hátt, hvort sem það er í landgræðslu eða skógrækt eða jafnvel í nýtingu á hinum ýmsu auðlindum. Ég held að það sé ágætt að nota orðið frumkvöðlar, það er þá bara ansi vítt hugtak, í staðinn fyrir að vera að þrengja tillöguna og sérstaklega gagnvart þeim sem þetta gæti nú kannski hjálpað ef af verður, ef þessi tillaga nær fram að ganga. Það er alveg ljóst að með því að gera ekki neitt eins og staðan er í dag þá heldur sú þróun áfram sem hefur því miður verið þannig að það hefur verið að síga frekar á ógæfuhliðina, getum við sagt. Við þurfum að grípa til róttækra aðgerða til þess að aðstoða frumkvöðla til að geta komist yfir land til þess að nýta landið. Við getum horft til þess, hvort sem það er við skógrækt, landgræðslu, framleiðslu á hinum ýmsum matvælum, hvort sem það er þá framleiðsla á grasbítum; sauðfé, kindum, eða hvort við erum að horfa til þess að nýta ylræktina eða þá hvort það er bara hin almenna garðyrkja sem hefur sömuleiðis verið að draga úr. Vissulega eru tækifærin til staðar en við þurfum að finna leið til þess að aðstoða þessa frumkvöðla til að komast yfir land.

Þá ætla ég að vitna beint, frú forseti, í ályktunina. Þar segir:

„Alþingi ályktar að fela atvinnuvegaráðherra, í samráði við fjármála- og efnahagsráðherra og innviðaráðherra, að móta og innleiða nýtt fyrirkomulag stuðnings við jarðakaup frumkvöðla á landsbyggðinni með það að markmiði að styrkja nýliðun í matvæla- og fóðurframleiðslu, landvernd og skógrækt.“

Við getum horft á það þannig, eins og kemur fram í greinargerð þessarar þingsályktunartillögu, að meginhugmynd verkefnisins felist í ákveðnum kauprétti á landi sem er þá grunnur að ákveðinni verðmætasköpun því samhliða eða þá ákveðinni náttúruvernd. Hugmyndin byggist á því að ríkissjóður, þá í gegnum Byggðastofnun eða aðra viðeigandi stofnun, geti gengið inn í samþykkt kauptilboð einstaklinga og eftir atvikum lögaðila í jörð eða þá hluta af jörð og landið yrði þá keypt á markaðsforsendum og leigt viðkomandi til allt að fimm ára. Á þessum fimm árum myndar viðkomandi aðili kauprétt og er þá tækifæri fyrir frumkvöðulinn til þess, þegar að því kemur, að nýta kaupréttinn, ganga inn í kaupin og er þá ríkið í sjálfu sér búið að aðstoða. Við þekkjum það öll að við þurfum á mjög þolinmóðu fjármagni að halda, sérstaklega þegar kemur að matvælaframleiðslunni. Framleiðsluferillinn er langur, þetta er kostnaðarsamt og öll þekkjum við umræðuna um afkomu bænda undanfarin ár þótt vissulega hafi hún nú sem betur fer verið í rétta átt upp á síðkastið. En betur má ef duga skal hvað það varðar. Það er grunnhugmyndin, frú forseti, að því sem verið er að fjalla um hérna.

Það verður að hafa í huga sömuleiðis að þessi tillaga er nátengd tveimur öðrum þingsályktunartillögum sem Framsóknarflokkurinn ber fram og hefur borið fram. Það er búið að flytja alla vega tvær af þeim upp á síðkastið; það er sú tillaga sem hér er verið að flytja, tillaga sem snýr að takmörkunum á jarðakaupum erlendra aðila hérlendis og síðan tillaga sem hefur verið flutt hér alla vega í þrígang af þeim sem hér stendur sem snýr að þjóðarátaki í landgræðslu og skógrækt.

Þessar þrjár tillögur eiga sameiginlegt vinnuheiti, nýjar rætur, sem eru þær hugmyndir sem við í Framsókn höfum verið að setja fram um það hvernig við getum reynt að nýta landið okkar með þeim hætti að það nýtist þjóðinni á sem bestan hátt og það er okkar skoðun innan Framsóknar að það að Íslendingar geti haft möguleika á því að yrkja landið og nýta það sé besta leiðin fyrir þjóðina í heild sinni. Við viljum ekki sjá að sú þróun geti verið óheft áfram varðandi uppkaup á landi og landið standi síðan jafnvel bara ónotað það sem eftir er. Sömuleiðis höfum við horft upp á stórfelld jarðakaup, t.d. eins og á Norðausturlandi, en við verðum að hafa það í huga að sú löggjöf sem við vinnum eftir heimilar þetta og höfum við svo sem bent á að mjög mikilvægt er sú löggjöf verði endurskoðuð og þetta er þá hluti af því, þessi þingsályktunartillaga sem hér er flutt.

Fyrst og fremst stuðlar þetta að því að íslenskir frumkvöðlar geti þá eignast jörð og nýtt hana og við teljum það vera mun betri leið heldur en að landið falli þá í hendur fjársterkra aðila sem eru þá ekki með tengsl inn á svæðið sjálfir, hafa í sjálfu sér ekki áhuga á að nýta landið til verðmætasköpunar. Það er eitt af því sem við óttumst mjög og við erum að sjá þá þróun mjög víða að heilu og hálfu dalirnir og svæðin eru að leggjast í eyði. Það er, held ég, þróun sem ekkert okkar í þessu húsi vill horfa á. Við því þurfum við að bregðast því að við vitum það, og ég ítreka það enn og aftur, frú forseti, að matvælaframleiðsla, sérstaklega þegar kemur að sauðfjár- og nautgriparækt, ég tala nú ekki um í garðyrkjunni, þarf þolinmótt fjármagn og um það snýst þessi þingsályktunartillaga. Þessi þróun kemur ekki til með að stöðvast bara af sjálfu sér eða áhuga fólks á því að fara í búskap eða nýta landið á sjálfbæran hátt því að eðli málsins samkvæmt hugsar fólk alltaf fyrst og fremst um það hvort menn hafi afkomu af því sem menn eru að gera og ég tel að ef rétt er á málum haldið varðandi þessa þingsályktunartillögu þá sé þarna leið sem hægt væri að fara.

Tillagan felur sömuleiðis í sér stefnumótandi aðgerðir til stuðnings matvælaöryggi, byggðastefnu og innlendri eign auðlinda. Sömuleiðis verðum við að horfa til þess að þetta er í sjálfu sér raunhæft framlag til markmiða Íslands í loftslagsmálum því að öll nýting á landi, hvort sem það er skógrækt eða endurheimt á votlendi, endurheimt jarðgæða og annað, er stór þáttur í takmörkunum og þeim markmiðum sem Ísland hefur sett sér þegar kemur að loftslagsmálum og þessi þingsályktunartillaga rammar það ágætlega inn.

Frú forseti. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra en ég legg til að þessari þingsályktunartillögu verði vísað til hv. atvinnuveganefndar.