157. löggjafarþing — 25. fundur,  23. okt. 2025.

verndun og sjálfbær nýting líffræðilegrar fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja.

210. mál
[14:14]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég tek heils hugar undir orð hv. þm. Pawels Bartoszeks. Mikilvægi hafréttar í Íslandssögunni er gríðarlegt og það verður vonandi þannig að Alþingi og hv. alþingismenn muni áfram tryggja að Ísland geti verið leiðandi afl í mótun og stjórnun auðlinda hafsins. Eins og ég vék að í ræðu minni og hv. þm. Pawel Bartoszek kom inn á í ræðu sinni hafa hagsmunir Íslands á þessu sviði verið gríðarlegir, en það er líka þannig að forysta Íslands og áhrif á mótun þess ramma sem hafréttur hefur þróast innan á alþjóðavísu hafa líka verið töluverð og það sæti megum við alls ekki við að missa. Ég tek þess vegna undir orð hv. þingmanns að það er mikilvægt að það sé víðtæk samstaða í þinginu, málið fái góða en hraða meðferð þannig að Ísland geti verið þátttakandi í þessum mikilvæga samningi frá upphafi.