157. löggjafarþing — 25. fundur,  23. okt. 2025.

þjóðfáni Íslendinga og ríkisskjaldarmerkið.

194. mál
[14:15]
Horfa

Flm. (Karl Gauti Hjaltason) (M):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi mínu til laga um breytingu á lögum um þjóðfána Íslendinga og ríkisskjaldarmerkið, nr. 34/1944, um notkun þjóðfánans á opinberum byggingum. Meðflutningsmenn með mér á frumvarpinu er gjörvallur þingflokkur Miðflokksins, hv. þingmenn Eiríkur S. Svavarsson, Ingibjörg Davíðsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Sigríður Á. Andersen, Bergþór Ólason, Snorri Másson og Þorgrímur Sigmundsson.

Í 1. gr. frumvarpsins segir:

„Við 6. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

Á húsum opinberra stofnana, sem eru í umsjá valdsmanna eða sérstakra forstöðumanna ríkisins, er einungis heimilt að draga á stöng þjóðfána Íslendinga. Þó er heimilt að draga á stöng, auk þjóðfána Íslendinga, þjóðfána annarra ríkja á þjóðhátíðardegi þeirra og við opinberar heimsóknir fulltrúa þeirra ríkja. Ráðuneytið getur, við sérstakar aðstæður, veitt undanþágur frá þessu ákvæði.“

Í 2. gr. frumvarpsins segir að lögin taki þegar gildi.

Þjóðfáni Íslendinga er einstakt tákn um fullveldi Íslands og sjálfstæði þjóðarinnar sem í landinu býr. Fáninn er sameiningartákn sem íslenska þjóðin hefur hyllt allt frá opinberri staðfestingu hans 19. júní 1915 og er þannig tákn um einingu okkar Íslendinga sem þjóðar. Eins og fánar annarra Norðurlandaþjóða er íslenski fáninn krossfáni sem undirstrikar að hér býr kristin þjóð í landinu.

Frú forseti. Oft heyrist í samtölum manna á meðal og ekki síst hjá erlendum gestum okkar hve fólki finnst íslenski fáninn fallegur, sem hann svo sannarlega er með sínum björtu og fallegu litum. Rauði liturinn í þjóðfána okkar táknar eldinn sem býr í iðrum jarðar undir landinu og hefur reyndar verið þjóðinni mjög erfiður í sambýli en okkur hefur einnig tekist að beisla þá orku þjóðinni til góðs. Hvítur litur þjóðfánans táknar ísinn, snjóinn og jökla landsins, en þjóðin hefur oft og tíðum þurft að takast á við þau náttúruöfl og landsins forni fjandi, hafísinn, hefur gert forfeðrum okkar marga skráveifu. Nú horfir hins vegar svo við að þeir ferðamenn sem til landsins koma vilja ólmir berja augum andstæðurnar í landinu, ísinn og eldinn, jöklana og jarðhitann, og blár litur fánans táknar ýmist hafið sem umlykur landið, himininn eða fjallablámann. Blái liturinn umlykur landið og alla fegurð þess, bæði í formi hafs og himins.

Frú forseti. Flutningsmenn þessa frumvarps leggja áherslu á mikilvægi íslenska þjóðfánans og að um notkun hans við opinberar byggingar gildi skýrar reglur í þeim tilgangi að hann verði meira notaður og með því hvatt til samstöðu þjóðarinnar. Nýverið breyttu Danir lögum um danska þjóðfánann, Dannebrog, þar sem skýrt er hvernig skuli nota hann við opinberar byggingar. Þar er m.a. tekið fram að bannað sé að flagga honum eða öðrum þjóð- eða svæðisfánum með fáum afmörkuðum undantekningum. Svipaðar reglur má finna um norska fánann nema í Noregi má einnig nota samíska fánann eða fána sveitarfélaga og fylkisfána. Í Þýskalandi eru erlendir fánar eða fánar alþjóðastofnana notaðir við viðeigandi tilefni, eins og segir, og tekin um það sjálfstæð ákvörðun í hvert skipti.

Frú forseti. Reglur annarra þjóða um þjóðfánann eru skýrar og skýrari en þær reglur sem við höfum verið með. Ég tel mikilvægt að við stígum skref í þá átt að gera þetta skýrara hér á landi til að þjóðfáninn fái þann sess sem honum ber í landinu sem tákn um sameiginlega arfleifð þjóðarinnar sem í landinu býr.

Frú forseti. Ég tel að við ættum að nota fánann oftar og meira. Ég tel sömuleiðis að setja eigi opinberum aðilum ákveðnari reglur en gilt hafa til þessa um notkun þjóðfánans. Af því tilefni hef ég lagt fram það frumvarp sem ég mæli hér fyrir þar sem kveðið er á um að einungis skuli flagga íslenska þjóðfánanum við byggingar í eigu ríkisins með fáeinum undantekningum, svo sem á þjóðhátíðardögum vinaþjóða okkar og í tilefni af opinberum heimsóknum fulltrúa þeirra ríkja. Fánadagar og fánatími er ákveðinn í reglugerð þannig að þetta frumvarp fjallar ekki um það. Það er í höndum hæstv. forsætisráðherra að breyta því en borið hefur á umræðu um það undanfarnar vikur að lengja eigi þann tíma sem fólk geti haft fánann okkar á lofti, sérstaklega á sumrin þegar bjart er, og tekið skal undir það hér í þessari ræðu að það er fyllilega eðlilegt að skoða það.

Ýmsar aðrar reglur um þjóðfánann er að finna í forsetaúrskurðinum um fánadaga og fánatíma, auglýsingu um liti íslenska fánans frá 2016 og víða annars staðar. Ýmislegt sem varðar notkun fánans er ekki lögbundið og ekki að finna í reglum en myndast hafa ýmsar hefðir og reglur um það. Ég lýsi þeirri skoðun minni að það megi skoða það miklu betur hvernig við umgöngumst fánann og hvernig við flöggum honum með það að markmiði að reyna að gera veg hans enn meiri en verið hefur. Fánadagar eru tilteknir í forsetaúrskurðinum frá 1991 þar sem opinberir fánadagar á Íslandi eru 12 og eru þeir taldir þar upp allir sem einn. Reglur um notkun fánans á alls kyns mótum og við ýmsar stofnanir aðrar en kannski hinar eiginlegu ríkisstofnanir, svo sem íþróttahús og fleira, eru fyrir hendi eins og t.d. reglur um það hvernig nota eigi fánann í fánaborg, hvernig eigi að flagga þeim og í hvaða röð þeir eru. Þetta hefur allt verið í sæmilegum skorðum en hugsanlega má bæta um betur og styrkja þær reglur enn betur.

Ég beini því til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, sem fær þetta frumvarp til skoðunar, að í tilefni af umsögnum sem berast megi kannski skoða það að frekari breytingar verði í þá veru sem ég nefni hér til að styrkja og skýra þær reglur sem um fánann gilda. Ég er mjög bjartsýnn, frú forseti, á að þetta frumvarp hljóti góðar undirtektir á Alþingi enda tel ég efni þess í samræmi við vilja yfirgnæfandi meiri hluta þjóðarinnar. Ég hef orðið var við mikla og ánægjulega hvatningu í tilefni af því að ég lagði frumvarpið fram í þessari viku. Undirtektir hafa verið virkilega jákvæðar. Ég legg því til að frumvarpið fái vandaða og skjóta umfjöllun í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd eftir þessa umræðu.