varamenn taka þingsæti.
Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Flokks fólksins um að Ásthildur Lóa Þórsdóttir verði fjarverandi á næstunni. Þá hefur borist bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að Hildur Sverrisdóttir muni ekki geta sinnt þingstörfum á næstunni. Einnig hafa borist bréf frá Eydísi Ásbjörnsdóttur, Maríu Rut Kristinsdóttur og Sigmundi Erni Rúnarssyni um að þau verði fjarverandi á næstunni.
Í dag taka því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Flokks fólksins í Suðurkjördæmi, Elín Íris Fanndal, 2. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, Tómas Þór Þórðarson, en 1. varamaður á lista hefur þegar tekið sæti, 1. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi, Sæunn Gísladóttir, 3. varamaður á lista Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi, Gylfi Ólafsson, en varamenn ofar á lista hafa boðað forföll, og 1. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, Anna María Jónsdóttir.
Elín Íris Fanndal, Tómas Þór Þórðarson og Anna María Jónsdóttir hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðin velkomin til starfa að nýju.