Frestun á skriflegum svörum.
Forseta hafa borist bréf frá mennta- og barnamálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 163, um stöðu og árangur í grunnskólum, frá Jóni Pétri Zimsen, á þskj. 178, um fyrsta og annars stigs þjónustu á vegum sveitarfélaga, frá Ingibjörgu Isaksen, og á þskj. 236, um menntun fanga, frá Sigurði Erni Hilmarssyni.
Einnig hafa borist bréf frá dómsmálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 143, um afplánun erlendra fanga, og á þskj. 117, um erlenda fanga, báðar frá Diljá Mist Einarsdóttur, og á þskj. 168, um dóm Mannréttindadómstóls Evrópu gegn íslenska ríkinu, frá Maríu Rut Kristinsdóttur.
Þá hafa borist bréf frá innviðaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 166, um öryggismál í jarðgöngum, frá Ingibjörgu Isaksen, og á þskj. 165, um farnetsþjónustu, frá Maríu Rut Kristinsdóttur.
Einnig hafa borist bréf frá fjármála- og efnahagsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 169, um örorkubyrði lífeyrissjóða, frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.
Að lokum hefur borist bréf frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 126, um þjónustugjöld, frá Tryggva Mássyni.