skattahækkanir og húsnæðispakki ríkisstjórnarinnar.
Virðulegi forseti. Það var fyrirséð að fyrsti húsnæðispakki ríkisstjórnarinnar kjarnaðist í hærri sköttum og auknum útgjöldum, frekari álögum sem hjálpa heimilunum nákvæmlega ekki neitt. Ríkisstjórnin heldur áfram slagorðasmíð sinni og í staðinn fyrir að tala um skattahækkanir heyrast frasar um að draga úr skattfrelsi og glufum í kerfinu. Slíkt fer beint út í leiguverð, ýtir undir verðbólgu og heldur vöxtum háum. Ég minni á að verðbólga fer hækkandi. Margir á landsbyggðinni eiga litla íbúð í Reykjavík vegna vinnu eða náms barna sinna. Ný skattlagning á slíkar eignir er í reynd skattur á landsbyggðina. Af hverju velur ríkisstjórnin að hækka skatta, sem hækka leigu og halda vöxtum háum í stað þess að lækka kostnað og auka framboð? Svo er boðað að troða 4.000 íbúðum í Úlfarsárdal á svæði sem áætlað er að rúmi 2.000 íbúðir. Er verið að kalla eftir svo þéttbyggðum hverfum, virðulegi forseti? Nei, alls ekki. Og hvar eru útfærslur um alla innviði, um leikskóla, um heilsugæslu, samgöngur og bílastæði? Hver ber kostnaðinn? Á meðan er ekkert plan sem lækkar vexti eða eyðir óvissu á lánamarkaði strax.
Ég spyr því hæstv. forsætisráðherra: Hvers vegna var valin leið skattahækkana sem færist beint út í hærra leiguverð, dregur úr framboði og leggst sérlega á fólk utan höfuðborgarsvæðisins á tímum hárrar verðbólgu og vaxta? Hvaða greining liggur fyrir um áhrif þessara álaga á leiguverð, á verðbólgu, á vexti og á ráðstöfunartekjur heimila á næstu mánuðum?